Hér má finna níu þemahefti fyrir miðstig og kennsluleiðbeiningar. Þemaheftin komu út hjá Námsgagnastofnun (nú MMS) á árunum 2002-2006. Þessi hefti eru hluti af námsefninu Geisli. Viðfangsefni eru fjölbreytt og taka á mörgum þáttum stærðfræðinnar. Heftin má bæði nota sem útgangspunkt í samþættum verkefnum og sjálfstætt. Útgefandi og höfundar texta og mynda hafa gefið góðfúslegt leyfi fyrir birtingu á vef Flatarmála.
Dýr í Afríku
Dýr í Afríku er þemahefti fyrir miðstig sem tengir stærðfræði við dýralíf Afríku. Megináherslan er á tölfræði þar sem nemendur safna gögnum, setja þau fram í myndritum og túlka niðurstöður. Kennsluleiðbeiningar fylgja heftinu.
Birt með góðfúslegu leyfi höfunda.
Texti: Guðbjörg Pálsdóttir
Myndir: Halla Sólveig Þorgeirsdóttir
Hve stórt er STÓRT?
Hve stórt er STÓRT? er þemahefti fyrir miðstig með áherslu á mælingar, hlutföll og sjónarhorn. Nemendur áætla stærðir, vinna með mælikvarða og stækkun og minnkun og kanna burðarþol. Kennsluleiðbeiningar fylgja heftinu.
Birt með góðfúslegu leyfi höfunda.
Texti: Guðný Helga Gunnarsdóttir.
Myndir: Sigurður Ingi Jensson
Jöklar
Jöklar er þemahefti fyrir miðstig sem tengir stærðfræði við jökla og loftslagsbreytingar. Áhersla er á að lesa úr töflum og myndritum, vinna úr upplýsingum, draga ályktanir og reikna flatarmál og rúmmál. Verkefnin tengja stærðfræði við náttúrufræði og daglegt líf. Kennsluleiðbeiningar fylgja heftinu.
Birt með góðfúslegu leyfi höfunda.
Texti: Guðrún Angantýsdóttir
Myndir: Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir
Mynstur
Mynstur er þemahefti fyrir miðstig með áherslu á mynstur, regluleika og mynsturgerð. Nemendur skoða mynstur í umhverfi sínu, kynnast speglun, hliðrun og snúningi og skapa eigin mynstur. Verkefnin tengja stærðfræði við náttúru, myndlist og handverk. Kennsluleiðbeiningar fylgja heftinu.
Birt með góðfúslegu leyfi höfunda.
Texti: Guðrún Angantýsdóttir
Myndir: Halla Sólveig Þorgeirsdóttir
Reiknitæki
Reiknitæki er þemahefti fyrir miðstig sem fjallar um þróun reiknitækja, allt frá einföldum ristum í tré til töflureikna. Nemendur kynnast ólíkum reiknitækjum og nota vasareikni og töflureikni til að rannsaka talnasambönd, reikniaðgerðir og vinna úr gögnum. Kennsluleiðbeiningar fylgja heftinu.
Birt með góðfúslegu leyfi höfunda.
Texti: Jónína Vala Kristinsdóttir
Myndir: Ingimar Waage
Rökþrautir
Rökþrautir er þemahefti fyrir miðstig með áherslu á rökhugsun, röksemdafærslu og þrautalausnir. Nemendur glíma við fjölbreyttar þrautir, leita ólíkra lausnaleiða, sannreyna niðurstöður og útskýra hugsun sína fyrir öðrum. Kennsluleiðbeiningar fylgja heftinu.
Birt með góðfúslegu leyfi höfunda.
Texti: Jónína Vala Kristinsdóttir
Myndir: Ingimar Waage
Siglingar
Siglingar er þemahefti fyrir miðstig sem tengir stærðfræði við báta og siglingar. Nemendur vinna meðal annars með hlutföll, flutninga, mælikvarða, prósentur, hnitakerfi, hnútafræði og myndrit. Verkefnin fela í sér að kanna kostnað, mæla vegalengdir á korti og gera líkan af báti. Kennsluleiðbeiningar fylgja heftinu.
Birt með góðfúslegu leyfi höfunda.
Texti: Jónína Vala Kristinsdóttir
Myndir: Ingimar Waage
Sund
Sund er þemahefti fyrir miðstig sem tengir stærðfræði við sund og sundlaugar. Áhersla er á að lesa úr töflum, reikna með stórum tölum, nota mælikvarða og finna flatarmál. Einnig vinna nemendur með tíma, vegalengdir og kostnað. Kennsluleiðbeiningar fylgja heftinu.
Birt með góðfúslegu leyfi höfunda.
Texti: Guðrún Angantýsdóttir og Jónína Vala Kristinsdóttir.
Myndir: Kristín Ragna Gunnarsdóttir
Töfrar
Töfrar er þemahefti fyrir miðstig sem tengir stærðfræði við bókina Abrakadabra eftir Kristínu Steinsdóttur. Verkefnin eru í léttum dúr og reyna á rökhugsun, innsæi og talnaskilning. Nemendur vinna meðal annars með mynstur, brot, hlutföll, mælingar og tímareikninga. Kennsluleiðbeiningar fylgja heftinu.
Birt með góðfúslegu leyfi höfunda.
Texti: Jónína Vala Kristinsdóttir.
Myndir: Kristín Ragna Gunnarsdóttir











