Nemar á faraldsfæti
alþjóðlegar ferðir og keppnir í stærðfræði 2026
Íslenskir framhaldsskólanemar hafa farið í fjölmargar alþjóðlegar ferðir og keppnir í stærðfræði á þessu ári. Slík þátttaka gefur efnilegum nemendum tækifæri til að takast á við krefjandi verkefni, kynnast jafningjum frá öðrum löndum og efla áhuga sinn á stærðfræði og raunvísindum.
Norrænar þjálfunarbúðir og NMC
Í lok mars tóku nokkrir íslenskir nemendur þátt í norrænum þjálfunarbúðum fyrir Norrænu stærðfræðikeppnina (NMC) í Lundi í Svíþjóð. Búðirnar voru haldnar dagana 23.-27. mars á vegum sænska félagsins Ung Vetenskapssport, sem heldur utan um þátttöku Svía í alþjóðlegum raunvísinda- og stærðfræðikeppnum.
Á meðan á búðunum stóð fengu þátttakendur þjálfun í að leysa stærðfræðiverkefni, þeir sóttu fyrirlestra og unnu með nemendum frá öðrum Norðurlöndum. Búðunum lauk síðan með þátttöku í sjálfri Norrænu stærðfræðikeppninni.
EGMO – Evrópuleikar stúlkna í stærðfræði
Ísland sendi í fyrsta sinn lið til þátttöku í Evrópuleikum stúlkna í stærðfræði, European Girls’ Mathematical Olympiad (EGMO), sem haldnir voru í Bordeaux í Frakklandi dagana 9.-15. apríl.
Í liði Íslands voru Mary Lilja Ingimundarson, MR, Nicole Jóna Jóhannsdóttir, MR, Snædís Hanna Jensdóttir, MA og Snædís Jökulsdóttir, MR. Liðsstjóri var Álfheiður Edda Sigurðardóttir og fararstjóri Nanna Kristjánsdóttir.
Þátttaka Íslands í EGMO markar mikilvægt skref í að efla þátttöku stúlkna í stærðfræðikeppnum og hvetja fleiri ungar konur til að leggja stund á stærðfræði og raunvísindi.

EMO – Evrópuleikar í stærðfræði
Ísland tók einnig þátt í nýstofnuðum Evrópuleikum í stærðfræði, European Mathematical Olympiad, (EMO), sem haldnir voru í Vilníus í Litháen dagana 23.-29. apríl.
Í liðinu voru Daði Logason, MR, Elvar Magnússon, VÍ, Magnús Thor Holloway, MR og Þorsteinn Snæland, MR. Liðsstjóri var Benedikt Jóhannesson og fararstjóri Marteinn Þór Harðarson.
Keppnin þótti afar erfið og voru mörg verkefnanna sérstaklega krefjandi. Þrátt fyrir það hlutu Magnús, Daði og Þorsteinn heiðursviðurkenningu fyrir lausnir sínar.

IMO – Alþjóðlegu Ólympíuleikarnir í stærðfræði
Sumarið 2026 verða Alþjóðlegu Ólympíuleikarnir í stærðfræði, International Mathematical Olympiad, (IMO) haldnir í Shanghai í Kína.
Í lið Íslands voru valdir Daði Logason, MR, Eysteinn Daði Hjaltason, VÍ, Jóakim Uni Arnaldarson, MR, Magnús Thor Holloway, MR, Matthías Pálmason Skowronski, MR og Patrek Ragnarsson, ETHs. Liðsstjóri verður Atli Fannar Franklín og fararstjóri Matthías Andri Hrafnkelsson.
Í undirbúningi fyrir keppnina stefnir íslenska liðið á að taka þátt í þjálfunarbúðum í Kína á vegum kínversku ólympíunefndarinnar. Slíkar búðir eru mikilvægur liður í undirbúningi keppenda fyrir stærstu stærðfræðikeppni heims.

Konur í stærðfræði
Veggspjaldið varð til í Hollandsdeild samtakanna European Women in Mathematics – EWM-NL. Það var samið í samvinnu hóps kvenna frá Hollandi og Bretlandi, þeirra Silvy Henriks, Houry Melkonian og Maria Vlasiou sem átti hugmyndina að gerð þess. Veggspjaldið hefur verið þýtt á sautján tungumál og þýðingar á fjórtán önnur tungumál eru í undirbúningi. Kristín Bjarnadóttir hafði veg og vanda að því að veggspjaldið var þýtt á íslensku og kennarar á Menntavísindasviði HÍ aðstoða við dreifingu. Veggspjaldinu er ætlað að vekja athygli á þætti kvenna í þróun stærðfræðinnar því oft er eins og þær hafi ekki verið hluti af samfélagi stærðfræðinga




























