Kristín Bjarnadóttir Björn Bjarnason var stærðfræðikennari minn forðum daga í Menntaskólanum í Reykjavík. Hann kenndi okkur um framandi hluti, sem nú eru mér orðnir inngrónir eftir áratuga göngu í spor hans. Eitt þótti mér skrítið: Dag nokkur fór hann að dunda sér við að leggja saman lágar tölur á töflunni. Ef til vill hefur athygli…




























