
Anna Kristjánsdóttir var aðalhvatamaður að stofnun Flatar árið 1993 og fyrsti formaður samtakanna. Hún lést 9. apríl 2025 (9.4.25).
Anna var hugsjónakona og framlag hennar til fræðasviðsins stærðfræðimenntun hér á landi er ómetanlegt. Til að heiðra minningu hennar verður Önnuhorn í Flatarmálum í vetur. Þar munu birtast skrif hennar um fjölbreytt svið stærðfræðimenntunar.
Norrænt samstarf á sviði stærðfræðimenntunar var eitt af hugðarefnum Önnu. Á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar var samstarf á sviði stærðfræðimenntunar styrkt úr norrænum sjóðum. Frumkvæðið að þessu samstarfi áttu danska stærðfræðikennarafélagið og Kennaraháskólinn í Malmö. Starfandi var samráðshópur og töldu meðlimir hans mikilvægt að halda ráðstefnur annað eða þriðja hvert ár þar sem skipst væri á upplýsingum um þróunina á sviði stærðfræðináms og -kennslu. Auk þess taldi hópurinn mikilvægt að kennarar gætu sótt endumenntunarnámskeið innan Norðurlandanna.
Fyrstu ráðstefnurnar voru haldnar í Svíþjóð 1975 og 1979. Hópurinn hóf undirbúning að ráðstefnu sem halda skyldi árið 1981 á Íslandi. Áður en til framkvæmda kom var norræni samstarfshópurinn lagður niður fyrirvaralaust. Engu að síður var ljóst að áhugi var á áframhaldandi samstarfi og því var sett á stofn undirbúningsnefnd hér á landi. Með norrænum stuðningi tókst að koma á fundi í Osló sem Anna sótti. Þar voru lagðar fram hugmyndir að ráðstefnu á Flúðum sumarið 1983. Ekki fengust neinir styrkir til verkefnisins en ákveðið var að gefast ekki upp. Þátttakendur þurftu sjálfir að standa straum af kostnaði. Alls sóttu 30 þátttakendur ráðstefnuna, 14 frá Íslandi og alls 16 frá Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi. Yfirskrift ráðstefnunnar var Stærðfræðin sem sjálfstætt fag og sem hluti af stærri heild.
Ráðstefnan varð mikil lyftistöng fyrir íslensku þátttakendurna. Í þeim hópi voru bæði kennarar við Kennaraháskóla Íslands og kennsluráðgjafar sem störfuðu víða um land. Í tengslum við ráðstefnuna var sett upp, í Kennslumiðstöð Námsgagnastofnunar, sýning á námsgögnum og norrænu námsefni sem útgefendur á Norðurlöndum gáfu. Hluti þeirrar sýningar var síðan settur upp í tengslum við haustþing kennara. Nánar má lesa um ráðstefnuna í Nämnaren 1983, 2, bls. 6-8.

Í kjölfarið voru haldnar norrænar ráðstefnur og samráðsfundir í Danmörku árið 1986, Svíþjóð 1988 og 1990 og Finnlandi 1993. Ráðstefnan í Finnlandi 1993 markaði þáttaskil því þá var ákveðið að stofna samtökin Nordic Society for Research in Mathematics Education (NoRME) og efna til samstarfs um útgáfu rannsóknartímaritsins Nomad og ráðstefnuna NORMA þar sem fræðimenn kynntu rannsóknir sínar. Á þessum tíma var hópur norrænna rannsakenda í stærðfræðimenntun vaxandi og héldu samtökin fyrstu NORMA ráðstefnuna í Finnlandi árið 1994. Ýmis önnur samstarfsverkefni voru í gangi og má nefna að árið 1994 hélt Anna utan um málþingið Stærðfræði og lýðræði sem var stórt sameiginlegt norrænt rannsóknarverkefni.
Íslenskir kennarahópar fóru í auknum mæli að sækja ráðstefnur á Norðurlöndunum sem ætlaðar voru stærðfræðikennurum. Árin 1992 og 1994 fóru hópar á Matematikbiennalen í Gautaborg. Þá fóru þeir einnig í heimsóknir í skóla í Kungsbacka og fylgdust með kennslu.
Árið 1997 stóð Flötur fyrir því að íslenskir kennarar tækju þátt í ráðstefnunni Bekkjarkennarinn sem stærðfræðikennari sem haldin var í Nordfjordeid í Noregi. Alls tóku 27 kennarar héðan þátt og voru þeir duglegir að kynna starf sitt og segja frá nýjungum sem þeir voru að þróa í kennslu sinni. Í Flatarmálum 1997, 1. tbl., bls. 9-16 eru frásagnir nokkurra kennara sem tóku þátt í ráðstefnunni. Árið 2000 héldu Flötur og Kennaraháskóli Íslands síðustu norrænu ráðstefnuna Stærðfræði – fræði og starf. Í Flatarmálum 2001, 1. tbl. eru nokkrar greinar þar sem sagt er frá fyrirlestrum, vinnustofum og upplifun þátttakenda.
Árið 2000 var alþjóðlegt ár stærðfræðinnar. Stofnaður var samstarfshópur fulltrúa Flatar, Íslenska stærðfræðafélagsins, Félags raungreinakennara, Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands. Hópurinn stóð að fjölda viðburða og útgáfu á fjölbreyttu efni.
Meðal þess sem gefið var út var bókin Matematikk & undervisning. Hún var samstarfsverkefni norrænu tímaritanna og samtaka stærðfræðikennara. Markmiðið var að gefa innsýn í stærðfræðikennslu á Norðurlöndunum. Mikil umræða og áhugi skapaðist víða í samfélaginu um stærðfræði og stærðfræðimenntun því sjónum var bæði beint að stærðfræðikennarasamfélaginu og almenningi.

Alþjóðasamtök stærðfræðikennara (ICME) standa að stórum ráðstefnum um stærðfræðimenntun fjórða hvert ár. Norðurlöndin stóðu saman að slíkri ráðstefnu í Kaupmannahöfn árið 2004. Anna lagði mikla áherslu á að Íslendingar væru virkir þátttakendur og legðu fram efni í vinnustofur og héldu fyrirlestra. Um 75 manna hópur íslenskra stærðfræðikennara og fræðimanna á sviði stærðfræðimenntunar sóttu ráðstefnuna. Árið 2016 var ráðstefnan haldin í Hamborg og tóku þá um 40 Íslendingar þátt. Um þá ferð má lesa í fyrsta veftölublaði Flatarmála 2016.
Áhugi á hvernig staðið var að stærðfræðikennslu barna, sem eiga í örðugleikum með stærðfræðnám, óx á þessum árum. Anna lagði áherslu á að kynna kennnarnemum fjölbreyttar leiðir við stærðfræðikennslu og hvernig hægt er koma til móts við þarfir allra barna við stærðfræðinám. Hún átti líka frumkvæði að því að farið var að fjalla um stærðfræðinám í sérkennaranámi við KHÍ. Árið 2001 var haldin norræn ráðstefna í Kristiansand í Noregi um Stærðfræði fyrir alla í skóla fyrir alla og var það fyrsta NorSMa ráðstefnan. Síðan hafa NorSMa ráðstefnur verið haldnar annað hvort ár á Norðurlöndunum, þar af tvær á Íslandi.
Anna vann ötullega í norræna samstarfinu og opnaði með því dyr margra íslenskra stærðfræðikennara að tækifærum og þekkingu á sviði stærðfræðimenntunar. Kennarar sóttu ýmis námskeið á Norðurlöndunum og einnig komu fræðimenn og kennarar til Íslands til að taka þátt í námskeiðum. Á þessum áratugum efldust kennarar og mynduðu samfélag sem ýtti undir framþróun í stærðfræðikennslu.
Greinar
Anna Kristjánsdóttir. (1983). Matematik som et selvstændigt fag og integreret i en större helhed. Nämnaren 2, 6-8. https://ncm.gu.se/pdf/namnaren/0608_83-84_2.pdf
Anna Kristjánsdóttir. (1984). Konferensrapport. Matematikundervisningens roll och placering i nordisk demokratisk kultur. NOMAD 2,(3/4), 75-77. https://doi.org/10.7146/nomad.v2i3-4.146142
Anna Kristjánsdóttir. (2000). Alþjóðlega stærðfræðiárið 2000. Flatarmál 8,(2) 34-35. https://www.ki.is/media/tqup4exp/flatarmal_2000_2tbl.pdf
Anna Kristjánsdóttir. (2001). Flötur er ekki einn í heiminum. Það má margt af öðrum læra. Flatarmál 9,(1) 34-36. https://rafhladan.is/bitstream/handle/10802/16796/Flatarmal_2001_1tbl.pdf?sequence=13
Guðbjörg Pálsdóttir og Sigrún Ingimarsdóttir. (2013). Norrænar ráðstefnur. Flatarmál 20(1), 30-33. https://www.ki.is/media/zwkgvka2/flatarmal_2013_1tbl.pdf
Ragnheiður Gunnarsdóttir, Jóna Guðmundsdóttir, Matthildur Guðmundsdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Hugó Rasmus, Jónína Vala Kristinsdóttir, Guðbjörg Pálsdóttir, Tómas Rasmus, Birna Hugrún Bjarnardóttir, Michael Wahl Andersen. (2001). Matematik 2000 í Borgarnesi. Flatarmál 9,(1) 9-28. https://rafhladan.is/bitstream/handle/10802/16796/Flatarmal_2001_1tbl.pdf?sequence=13

Umsjón með Önnuhorni hafa
Guðbjörg Pálsdóttir, Guðný Helga Gunnarsdóttir, Jónína Vala Kristinsdóttir og Kristín Bjarnadóttir









