
Anna Kristjánsdóttir var aðalhvatamaður að stofnun Flatar árið 1993 og fyrsti formaður samtakanna. Hún lést 9. apríl 2025 (9.4.25).
Anna var hugsjónakona og framlag hennar til fræðasviðsins stærðfræðimenntun hér á landi er ómetanlegt. Til að heiðra minningu hennar verður Önnuhorn í Flatarmálum í vetur. Þar munu birtast skrif hennar um fjölbreytt svið stærðfræðimenntunar.
Anna Kristjánsdóttir leitaði stöðugt leiða til að styðja kennara við að þróa stærðfræðikennslu sína og aflaði sér víða upplýsinga um rannsóknir á því sviði. Í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar kynnti hún sér rannsóknir á stærðfræðinámi ungra barna víða í Bandaríkjunum og kynnti þær í kennaranáminu. Hún dvaldi um tíma í Madison í Wisconsin fylki þar sem hún kynnti sér rannsóknarverkefnið Children’s Mathematics – Cognitively Guided Instruction, sem leitt var af Thomas Carpenter og Elizabeth Fennema við Wisconsin háskóla. Sumarið 1995 stóð hún fyrir sumarnámskeiði fyrir kennara, í yngstu bekkjum grunnskóla, þar sem þeir fengu að kynnast niðurstöðum úr rannsóknarverkefninu, vinna með þær og setja í samhengi við eigin reynslu af kennslu ungra barna. Kennari á námskeiðinu var einn forystumanna rannsóknarverkefnisins, Donald Chambers. Námskeiðinu var fylgt eftir og hittust kennararnir í upphafi árs 1996 til þess að ræða saman um hvernig þeim hefði gengið að nýta sér það sem þeir lærðu á námskeiðinu.
Haustið 1995 var rannsóknarverkefnið kynnt á námskeiði fyrir kennaranema sem sérhæfðu sig í kennslu ungra barna. Verkefnið fékk heitið Stærðfræðikennsla byggð á skilningi barna á íslensku. Allt frá þeim tíma hafa niðurstöður rannsóknanna verið kynntar á námskeiðum fyrir starfandi kennara og í kennarnáminu. Flötur fékk styrk árið 1998 til að halda framhaldsnámskeið fyrir kennara sem kynnst höfðu hugmyndafræði rannsóknarverkefnisins. Það fór fram með staðlotum og samskiptum á neti og lauk sumarið 1999.
Stærðfræðinámsefnið Eining kom út í upphafi aldarinnar. Þar er unnið út frá hugmyndum um Stærðfræðikennslu byggða á skilningi barna og í kennsluleiðbeiningum við Einingu er gerð grein fyrir hugmyndafræðinni sem byggt er á varðandi talna- og aðgerðaskilning.
Margir kennarar sem þátt tóku í námskeiðinu sumarið 1995 hafa haldið áfram að vinna með það sem þeir lærðu á námskeiðinu og þróað stærðfræðikennslu sína á grundvelli þess (Jónína Vala, 2010; Kristjana, 2009; Margrét, 2009).
Bókin Children’s Mathematics – Cognitively Guided Instruction kom út árið 1999 (Carpenter o. fl., 1999) og fylgdu henni tveir diskar með myndbandsupptökum úr rannsókninni.
Á myndböndunum sjást börn leysa þrautir og samræður rannsakenda við þau. Þá voru líka myndbönd úr kennslustofum þar sem fylgst var með kennslu kennara sem þátt tóku í rannsókninni. Bókin var endurútgefin árið 2015 (Carpenter o.fl., 2015) og þá með tenglum í ný myndbönd á vef. Hún hefur verið lesefni á námskeiðum fyrir kennaranema og starfandi kennara á Íslandi síðan hún kom út.

Rannsóknarverkefnið hefur haldið áfram bæði í Bandaríkjunum og víðar um heim. Veturinn 2020-2021 leiddi Ólöf Björg Steinþórsdóttir, við Háskóla Norður-Iowa í Bandaríkjunum, rannsókn í nokkrum skólum á höfuðborgarsvæðinu til að kanna talna- og aðgerðarskilning barna á aldrinum fimm til tíu ára (Ólöf Björg o.fl., 2021).
Menntafléttan hefur frá árinu 2021 boðið fram námskeiðið Talna- og aðgerðarskilningur fyrir kennara á yngsta stigi grunnskóla. Það byggir á rannsóknunum um stærðfræðikennslu byggða á skilningi barna. Það er nú aðgengilegt í Opnu Menntafléttunni.
Hugmyndafræði Stærðfræðikennslu byggðri á skilningi barna hefur haft áhrif á stærðfræðikennslu á yngsta og miðstigi grunnskólans og ýtt undir að kennarar styðji nemendur í að þróa skilning sinn í gegnum samræður um lausnaleiðir og lausnir.
Heimildir
Anna Kristjánsdóttir, Jónína Vala Kristinsdóttir og Matthildur Guðmundsdóttir. (1995) Stærðfræðikennsla byggð á skilningi barna. Hefti tekið saman fyrir námskeiðið Kennsla ungra barna – Stærðfræðinám. KHÍ.
Carpenter, T. P., Fennema, E., Franke, M. L., Levi, L. og Empson, S. B. (1999). Children’s mathematics: Cognitively guided instruction. Heinemann.
Carpenter, T. P., Fennema, E., Franke, M. L., Levi, L. og Empson, S. B. (2015). Children’s mathematics: Cognitively guided instruction (2. útg). Heinemann.
Jónína Vala Kristinsdóttir. (2010). Samfélag kennara sem hvetur til ígrundunar um nám barna: Rannsókn á þróun stærðfræðikennslu á miðstigi grunnskóla. Ráðstefnurit Netlu – Menntakvika 2010. https://netla.hi.is/serrit/2010/menntakvika2010/018.pdf
Jónína Vala Kristinsdóttir og Ólöf Björg Steinþórsdóttir. (2023). Að móta námsumhverfi þar sem skapandi hugsun er í fyrirrúmi: Kristjana Skúladóttir, stærðfræðikennari. Í Sérriti Netlu 2023 – Þau skiptu máli: Sögur grunnskólakennara. https://doi.org/10.24270/serritnetla.2023.5
Kristjana Skúladóttir. 2009. Gaman, gaman – samvinna kennara og breyttir kennsluhættir. Flatarmál, 16(2), 36-38. https://rafhladan.is/server/api/core/bitstreams/cef0cda4-e94c-497b-ad78-e149cb563b70/content
Margrét Ásgeirsdóttir. 2009. Þrautakennsla í fjölhæffum bekk. Flatarmál, 16(2), 16–21. https://rafhladan.is/server/api/core/bitstreams/cef0cda4-e94c-497b-ad78-e149cb563b70/content
Nýjar stærðfræðiaðferðir í byrjendakennslu. (1997, 4. mars). Morgunblaðið [viðtal], bls. 30. https://timarit.is/page/1873931?iabr=on
Ólöf Björg Steinþórsdóttir, Guðbjörg Pálsdóttir og Jónína Vala Kristinsdóttir. (2021). „Ég leysi stundum vandamálið með svona hringjum“: Hugsun barna um margföldun. Skólaþræðir: Tímarit Samtaka áhugafólks um skólaþróun. https://skolathraedir.is/2021/04/21/eg-leysi-stundum-vandamalid-med-svona-hringjum-hugsun-barna-um-margfoldun
Sjö ára börn deila og margfalda án þess að þekkja þessi orð. (1997, 4. mars). Morgunblaðið [viðtal], bls. 30. https://timarit.is/page/1873931?iabr=on

Umsjón með Önnuhorni hafa
Guðbjörg Pálsdóttir, Guðný Helga Gunnarsdóttir, Jónína Vala Kristinsdóttir og Kristín Bjarnadóttir












