
Anna Kristjánsdóttir var aðalhvatamaður að stofnun Flatar árið 1993 og fyrsti formaður samtakanna. Hún lést 9. apríl 2025 (9.4.25).
Anna var hugsjónakona og framlag hennar til fræðasviðsins stærðfræðimenntun hér á landi er ómetanlegt. Til að heiðra minningu hennar verður Önnuhorn í Flatarmálum í vetur. Þar munu birtast skrif hennar um fjölbreytt svið stærðfræðimenntunar.
Ákveðið hefur verið að Ísland taki aftur þátt í TIMSS rannsókninni (Trends in International Mathematics and Science Study) og haldi jafnframt áfram að taka þátt í PISA. Á þessum tímamótum er áhugavert að lesa skrif Önnu um þátttöku í fjölþjóðlegum rannsóknum. Hún taldi mikilvægt að Íslendingar tækju þátt í fjölþjóðlegum viðburðum af ýmsum tagi og var í forystu þegar Ísland tók þátt í TIMSS árið 1995. Niðurstöður úr rannsókninni birtust ári síðar og skrifaði Anna þá þrjár greinar í Morgunblaðið um niðurstöðurnar og hvernig mætti nýta þær til að bæta stærðfræðikennslu. Hún ræddi um hve ólík rannsóknarverkefnin TIMSS og PISA væru. Í TIMSS er tekið mið af námskrá og námsefni í þátttökulöndunum og til dæmis er inntak námsefnis skoðað og prófað úr sameiginlegum efnisþáttum í því.
Anna taldi mikilvægt að almenningur fengi upplýsingar um niðurstöður úr rannsóknum sem íslenskir nemendur tækju þátt í og gæti á þeim grunni tekið þátt í upplýstri og málefnalegri umræðu um þær. Til þess þyrfti fólk að fá að vita úr hvaða efnisþáttum væri prófað og á hvað væri lögð áhersla í íslensku námsefni. Þegar niðurstöður væru skoðaðar þyrfti að taka mið af því á hvaða þætti væri lögð áhersla í námsefni þeirra nemenda sem tóku þátt í rannsókninni og hver árangur þeirra væri í þeim efnisþáttum. Einnig þyrfti að ræða hvort ástæða væri til að breyta áherslum í stærðfræðikennslu á Íslandi. Hún nefnir að á þessum tíma var hér á landi lögð mest áhersla á talnameðferð og brot í 8. bekk eða í yfir 60% námsefnis. Þetta var ólíkt því sem var í öðrum þátttökulöndum þar sem mun minni áhersla var lögð á þessa efnisþætti.
Hún skrifar um mikilvægi stærðfræðikennaramenntunar og að kennaranemar og starfandi kennarar fái tækifæri til að skoða leiðir í stærðfræðinámi og -kennslu. Hún taldi að grundvallaratriði til að bæta stærðfræðikennslu væri bætt menntun stærðfræðikennara. Lítill hluti stærðfræðikennara á þessum tíma hefði sérhæft sig á sviði stærðfræðimenntunar og brýnt væri að bæta úr því með tilboðum um viðbótarmenntun. Mikill skortur væri á vel menntuðum stærðfræðikennurum bæði í grunnskólum og framhaldsskólum.

Anna stóð fyrir því að Ísland tæki þátt í norrænu keppninni KappAbel. Þar kepptu bekkir á unglingastigi í stærðfræði og glímdu við fjölbreytt stærðfræðiverkefni. Í fyrstu og annarri lotu leysti hver bekkur þrautir í sameiningu í heimaskóla og á grundvelli árangurs í þeim voru valdir fjórir fulltrúar úr hverjum bekk til að keppa í undanúrslitum.
Hvert ár vann hver þátttökubekkur einnig bekkjarverkefni út frá tilteknu þema. Eitt dæmi um það er stærðfræði og orka. Áhersla var lögð á samvinnu og var bekkjarverkefni sett á sýningu þar sem lokakeppnin fór fram. Í lokakeppninni kynntu fjórir fulltrúar bekkjarins verkefnið og kepptu saman í að leysa þrautir fyrir hönd bekkjar síns og bekkjarfélagar fylgdust með.
Seinna varð til BEST-keppnin sem var sambærileg KappAbel. Fjölmargir grunnskólar tóku þátt um árabil. Í þessum keppnum kynntust kennarar og nemendur verkefnum þar sem þurfti að leita leiða og skrá vel lausnaleiðir. Um þessar keppnir skrifaði Anna í Morgunblaðið og Flatarmálskólaárið 2009 – 2010 og skrifaði einnig kynningarefni sem sent var til skólanna.
Auk skrifa sinna um málefni tengd stærðfræðinámi og -kennslu í Flatarmál skrifaði Anna oft í Morgunblaðið og nýtti það sem vettvang til að gefa almenningi innsýn í hugmyndir um hvað geti falist í stærðfræðimenntun. Morgunblaðið hefur gefið leyfi fyrir birtingu greina Önnu í Flatarmálum.
Greinar
Anna Kristjánsdóttir. (1977, 28. apríl). Um stærðfræðinám í grunnskóla. Morgunblaðið, bls. 18.
Anna Kristjánsdóttir. (1996, 17. desember). Vöndum umræður og vinnubrögð. Morgunblaðið, bls. 44-45.
Anna Kristjánsdóttir. (1996, 18. desember). Meirihluti stærðfræðikennara hefur ekki numið á háskólastigi. Morgunblaðið, bls. 41.
Anna Kristjánsdóttir. (1996, 19. desember). Hvað eru nemendurnir sem tóku þátt í TIMSS að læra og hvað geta þeir? Morgunblaðið, bls. 60-61.
Anna Kristjánsdóttir. (2002). KappAbel stærðfræðikeppni fyrir 9. bekk. Flatarmál 10,(1) 14-16. https://www.ki.is/media/hyoewz5a/flatarmal_2002_1tbl.pdf
Anna Kristjánsdóttir. (2007, 8. desember). PISA og KappAbel. Morgunblaðið, bls. 36-37.

Umsjón með Önnuhorni hafa
Guðbjörg Pálsdóttir, Guðný Helga Gunnarsdóttir, Jónína Vala Kristinsdóttir og Kristín Bjarnadóttir




























