Margrét Sigríður Björnsdóttir.
EECERA (European Early Childhood Education Research Association) eru alþjóðleg rannsóknarsamtök á sviði menntunar ungra barna. Árleg ráðstefna samtakanna er sú stærsta sinnar tegundar í Evrópu. Þar koma saman rannsakendur og fagfólk víðs vegar að úr heiminum til að miðla rannsóknum, ræða nýjar áherslur og tengja saman rannsóknir og starf á vettvangi.
Ráðstefnan ECCERA 2026 var haldin í háskólanum í Funchal á Madeira dagana 25.-28. ágúst 2026 undir yfirskriftinni: „Þróun frumkvæðis, þátttöku og lýðræðis á stafrænni öld“ og sóttu hana um 750 manns víðsvegar að úr heiminum en þó komu flestir þátttakendur frá Evrópu.
Ég undirrituð sótti ráðstefnuna og mun hér segja aðeins frá upplifun minni af því að sækja slíka ráðstefnu ásamt nokkru af því sem þar kom fram og þá helst í tengslum við stærðfræðinám ungra barna.



Fyrsta dag ráðstefnunnar var haldin Forráðstefna EECERA um börn á stafrænni öld. Þar fannst mér áhugaverðast að sjá dæmi um notkun barns á gervigreind og hve hún brást ólíkt við spurningum barnsins allt eftir því hvernig hún var stillt. Í einföldustu útgáfunni var hún nánast sammála öllu sem barnið sagði og studdi við allar hugmyndir þess sama hversu eigingjarnar þær voru. Þegar hún svo aftur var stillt á viðmót með dýpri „hugsun“ þá brást hún við spurningum barnsins á afar siðferðislegum nótum líkt og ef hún byggði svör sín á ákveðnum gildum. Ég verð að segja að gervigreindin kom mér verulega á óvart og er ég ekki viss um að raunverulegir foreldrar myndu endilega svara spurningum barnsins af jafn miklu siðferðilegu „innsæi“ og gervigreindin gerði.


Sama dag fóru fram svokallaðir SIG (Special Interest Group) fundir. Í samtökunum er starfræktur fjöldinn allur af slíkum hópum, eða 20 talsins, undir ýmsum formerkjum. Sá sem ég hafði mestan áhuga á snýr að stærðfræði frá fæðingu til átta ára (Mathematics Birth to Eight Years). Þar mættu um 14 manns og andrúmsloftið var frekar heimilislegt. Oliver Thiel hefur farið fyrir hópum í mörg ár og var nú komið að öðrum að taka við. Þess má geta að Oliver er sá fyrsti í heiminum til þess að verða prófessor í stærðfræðimenntun ungra barna en hann lauk doktorsprófi í þeirri sérhæfingu árið 2024.
Næstu þrjá dagana sótti ég ýmsar kynningar sem tengjast stærðfræði yngri barna. Sú fyrsta sem mig langar til að nefna er kynning á rannsókn sem var unnin af fræðimönnum í Nottingham háskólanum í Bretlandi. Hún fjallaði um viðhorf og reynslu barna af stærðfræði á fyrstu skólaárunum og voru niðurstöðurnar frá 4 og 6 ára börnum í Englandi. Í rannsókninni voru könnuð viðhorf barna til stærðfræði og reynsla þeirra af stærðfræðinámi þegar þau hefja skólagöngu en hún hefst í september sama ár og þau verða 4 ára í svokölluðum undirbúningsbekk. Skólaskylda miðast við 5 ára aldur. Um 5.000 börn tóku þátt. Flest börnin lýstu jákvæðum viðhorfum til stærðfræði og lítill munur kom fram eftir kyni, þjóðerni, tungumáli eða félagslegri stöðu. Hins vegar kom fram að aðgangur að leik og athöfnum, sem styðja við grunninn í stærðfræðinámi, minnkaði hjá sumum börnum á öðru skólaári. Höfundar telja því að skapa þurfi fleiri tækifæri til leikmiðaðrar stærðfræðivinnu, sérstaklega þegar líður á fyrstu skólaárin. Ef við setjum þessar niðurstöður í íslenskt samhengi þá hefur verið talað um „bóknámsrek“ í leikskólanum og mikilvægi þess að varðveita leikinn sem námsleið ungra barna.
Önnur kynning sem mig langar að segja frá snýr að viðhorfi leikskólakennara til aðgerða sem styðja við samræður í stærðfræði. Sænskir leikskólakennarar prófuðu að nota „talað um tölur“ (Talk Moves) sem eru markvissar leiðir kennarans til að fá börn til að útskýra hugsun sína, hlusta hvert á annað og byggja áfram á hugmyndum annarra. Fyrstu niðurstöður sýna að kennararnir eru jákvæðir gagnvart aðferðunum og átta sig á að þeir nota nú þegar sumar þeirra. Aðferðirnar gætu stutt sameiginlega rökhugsun og þátttöku fleiri barna í stærðfræðilegum samræðum. Fyrir nokkrum árum komu fræðimenn á námsstefnu Flatar og kynntu aðferðir í þessum anda. Ég veit ekki til þess að notkun þeirra hafi verið rannsökuð hér á landi en samræður í stærðfræði er þáttur sem talið er að mætti vera meira um.
Að lokum langar mig að segja frá rannsókn sem Oliver Thiel tók þátt í en eins og áður hefur komið fram þá var hann fyrstur til að verða prófessor í stærðfræðimenntun ungra barna. Hann ásamt tveimur öðrum fræðimönnum rannsökuðu mikilvægi leiks í stærðfræðinámi ungra barna og hvernig stærðfræðihugsun þróast í gegnum leik, samskipti og könnun. Um var að ræða alþjóðlegt samstarf þar sem skoðuð voru tengsl leiks og stærðfræðináms í ólíku menningarlegu og menntunarlegu samhengi en höfundarnir starfa á Kýpur, í Noregi og Bretlandi. Höfundarnir lögðu áherslu á að börn séu virkir þátttakendur í eigin námi og að stærðfræðiskilningur þeirra þróist meðal annars í sjálfsprottnum leik. Í kubbaleik má til dæmis sjá hvernig börn nýta rúmskynjun, rökhugsun og lausnaleit þegar þau gera tilraunir, byggja og þróa hugmyndir sínar áfram. Jafnframt var lögð áhersla á mikilvægt hlutverk leikskólakennara við að greina stærðfræðileg tækifæri í leik barna, styðja við hugmyndir þeirra og skapa námsumhverfi sem hvetur til rannsókna, sköpunar og samvinnu. Niðurstöðurnar benda til þess að leikur sé mikilvægur grundvöllur merkingarbærs stærðfræðináms og að fagleg þekking og meðvitund kennara skipti miklu máli við að efla stærðfræðihugsun barna.
Að minnsta kosti 12 kynningar snéru að stærðfræðinámi ungra barna en við höfum aðeins rýnt í þrjár þeirra. Ef efni kynninganna er dregið saman má segja að stærðfræðinámið eigi sér stað í leik, samtölum og hversdagslegum athöfnum barna en það skiptir miklu máli hvort kennarinn kemur auga á hana og kann að byggja áfram á henni. Eða eins og hér segir:
Leikurinn er öflugur vettvangur stærðfræðináms. Borðspil, hlutverkaleikur, vísur, kubbaleikur og leikjahönnun geta kallað fram talningu, rúmskynjun, flokkun, rökhugsun og alhæfingar.
Rödd og eigin hugmyndir barna skipta máli. Börn þurfa svigrúm til að finna eigin leiðir til að sýna og útskýra stærðfræðihugsun, hvort sem það er með fingrum, teikningum, táknum eða leik.
Hlutverk kennarans er lykilatriði. Kennarinn þarf bæði að þekkja stærðfræðina sem felst í leik barna og kunna að grípa tækifærin með spurningum, samtölum og viðeigandi stuðningi.
Rannsóknir á starfsþróun benda jafnframt til þess að slíkt faglegt næmi megi efla með samvinnu og ígrundun.
Á SIG fundinum fyrsta daginn voru kynntar til sögunnar þær málstofur sem hópurinn stóð fyrir á ráðstefnunni og lögð voru drög að nýrri bók en hópurinn hefur gefið út nokkrar bækur um stærðfræðinám barna. Sú nýjasta kom út árið 2026 og var kynnt sérstakleg á ráðstefnunni. Hún heitir Play and Mathematics in Early Childhood Education – Perspectives and Practices across Countries and Cultures og var ritstýrt af Oliver Thiel, Elizabeth Carruthers og Chrystalla Papademetri.
Árið 2020 kom út bókin Mathematics in Early Childhood – Research, Reflexive Practice and Innovative Pedagogy. Í henni er byggt á sex grundvallarathöfnum stærðfræðinnar samkvæmt Alan J. Bishop: að útskýra, telja, mæla, staðsetja, hanna og leika. Tekin eru dæmi frá ólíkum löndum sem sýna hvernig stærðfræði tengist daglegu lífi, leik og námi barna. Lögð er áhersla á að leikskólakennarar ígrundi eigin starfshætti og nýti fjölbreyttar leiðir til að efla stærðfræðihugsun og skilning barna. Markmið bókarinnar er að styðja kennara við að skapa námsumhverfi þar sem öll börn fá tækifæri til að uppgötva og læra stærðfræði á merkingarbæran hátt.


Sjálf hef ég kennt þrjú námskeið, undir hatti Menntafléttunnar, um stærðfræði í leikskóla sem byggja á hugmyndafræði Bishop. Námskeiðin eru nú aðgengileg á Opnu Menntafléttunni svo það getur hver sem er tekið þau.

Það var einmitt rannsókn á einu slíku námskeiði sem ég kynnti á ráðstefnunni á Madeira undir yfirskriftinni Starfsþróunarverkefni um að rannsaka og uppgötva stærðfræði í leikskólum. Ég ásamt Málmfríði Einarsdóttur, deildarstjóra í Kvistaborg, rannsökuðum starfsþróunarverkefni sem byggði á námskeiðinu Stærðfræðin í umhverfi leikskólabarna. Þátttakendur náðu að byggja upp lærdómssamfélag og starfsfólk fór í auknum mæli að sjá stærðfræði í daglegu starfi sem áður hafði ekki endilega verið skilgreint sem stærðfræðivinna. Verkefnið gaf kennurum jafnframt verkfæri til að gera stærðfræðina sýnilegri og áþreifanlegri fyrir börnin.
Ráðstefnur EECERA samtakanna eru haldnar víða um Evrópu og með því að sækja þær gefst oft tækifæri til að heimsækja nýja staði. Madeira hefur stundum verið nefnd blómaeyjan og ber hún það nafn með rentu. Ég notaði tækifærið ásamt Skúlínu samstarfskonu minni og skoðaði tvo grasagarða, fór í dagsferð upp á eyjuna, sem er yfir átján hundruð metra há, og fór yfir á norðurhelminginn. Það var vel við hæfi að fara í vínsmökkun enda Madeira-vínin heimsfræg. Móttaka og sigling var í boði ráðstefnunnar en það sem bar af var upplifunin af því að fara á Fado-kvöld. Það er menningarleg og tilfinningaþrungin upplifun þar sem gestir njóta hefðbundinnar portúgalskrar fado-tónlistar í mínu tilfelli yfir hefðbundnum kvöldverði.









Næsta ráðstefna verður haldin í Zagreb í Króatíu dagana 24.-27. ágúst 2027. Þá gefst tækifæri til að kynnast betur stærðfræðinámi ungra barna og því sem Zagreb hefur upp á að bjóða.

Að lokum langar mig að setja hér inn Ted-fyrirlestur sem Oliver Thiel flutti á EECERA ráðstefnunni haustið 2018 í Búdapest, Let’s Play Mathematics!. Þar fjallar hann um stærðfræði í leikskólastarfi og leggur áherslu á að stærðfræði eigi að vera eðlilegur, skapandi og ánægjulegur hluti af leik barna.
Tenglar og samstarfsaðilar:
Children’s Mathematics Network: https://childrens-mathematics.net
Facebook: https://www.facebook.com/groups/1515014682076863/
Norwegian Centre for Mathematics Education: https://www.matematikksenteret.no/english
Observatory for Mathematical Education: https://www.nottingham.ac.uk/observatory

Margrét Sigríður Björnsdóttir, aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands










