Árleg ráðstefna um Hugsandi skólastofu verður haldin í New Haven, Connecticut í lok júní.
Þar verða í boði fyrirlestrar, vinnustofur og tækifæri til að ræða við áhugasama kennara og fræðimenn um leiðir við sköpun og þróun leiða við Hugsandi skólastofu.

 

NORSMA 12 er norræn ráðstefna sem haldin verður í lok október í Osló. Þetta er norræn ráðstefna um stærðfræði fyrir alla. Á ráðstefnunni verður fjallað um spurningar sem snúa að stærðfræði og sérkennslu á Norðurlöndunum. Þemað í ár er DEIA sem stendur fyrir fjölbreytni (diversity), jafnræði (equity), inngilding (inclusion) og aðgengi (access). Kynntar verða rannsóknir og kennarar segja frá reynslu sinni.

 

Á ráðstefnunni er því tækifæri fyrir íslenska kennara að kynna hugmyndir sínar, deila reynslu sinni og taka þátt í umræðum.
Nánari upplýsingar má fá hjá hér eða hjá fulltrúum Íslands í ráðstefnunefndinni: Eddu Óskarsdóttur (eddao@hi.is) og Ósk Dagsdóttur (oskdags@hi.is).

 

 

Á Opnu Menntafléttunni þetta skólaárið eru fjölbreytt námskeið í boði fyrir öll skólastig:

Leikskóli:
🌱 Magnskilningur leikskólabarna
🌱 Stærðfræðin í leik barna
🌱 Stærðfræðin í umhverfi leikskólabarna

Grunnskóli yngsta stig:
🌿 Stærðfræðinám og upplýsingatækni
🌿 Talna- og aðgerðaskilningur
🌿 Tengsl og breytingar í stærðfræði
🌿 Tungumál stærðfræðinnar

Grunnskóli miðstig:
🪴 Stærðfræði og forritun
🪴 Stærðfræðinám og upplýsingatækni
🪴 Tengsl og breytingar í stærðfræði
🪴 Tungumál stærðfræðinnar

Grunnskóli unglingastig:
🌲 Greindu betur – samþætting stærðfræði, tölfræði og samfélagsgreina
🌲 Stærðfræði og forritun
🌲 Stærðfræðinám og upplýsingatækni
🌲 Tengsl og breytingar í stærðfræði
🌲 Tungumál stærðfræðinnar

Framhaldsskóli:
🌳 Greindu betur – samþætting stærðfræði, tölfræði og samfélagsgreina
🌳 Stærðfræði og forritun
🌳 Tungumál stærðfræðinnar

Mladen Zivanovic kennari við Landakotsskóla skrifar áhugaverða grein um faglega notkun gervigreindar í stærðfræðikennslu. Hann gerði rannsókn þar sem niðurstöður hans urðu ekki þær sem hann vonaðist eftir. Í kjölfarið hannaði hann vefsíðu með hagnýtar hugmyndir um hvernig megi nýta gervigreind í stærðfræðikennslu. við lestur greinarinnar – Gervigreind í kennslustofunni: Hugmyndir fyrir stærðfræðikennara –  kynnistu bæði rannsókn og vefsíðu Mladens.

Nú hefur Önnuhorn fjórði þáttur verið birtur í Flatarmálum. Þar eru dregin fram áhugaverð skrif hennar um þátttöku Íslands í TIMMS og norrænum keppnum. Nú þegar ákveðið hefur verið að Íslendingar taki aftur þátt í TIMMS er gagnlegt að lesa greinar Önnu sem birtust í Morgunblaðinu fyrir þrjátíu árum.

Foreldrar prófa leiðir
Hugsandi skólastofu

Margir íslenskir kennarar eru að prófa sig áfram við að skapa Hugsandi skólastofu í stærðfræði. Einn af þeim er Jóhann kennari í Grundaskóla. Hann skrifar nú grein í Flatarmál þar sem hann segir frá leiðum sínum. Mjög áhugavert er að hann bauð foreldrum að koma og prófa að takast á við stærðfræði í Hugsandi skólastofu.

Í Söguhorni Flatarmála birtist nú ný og áhugaverð grein eftir Kristínu Bjarnadóttur. Þar segir Kristín frá þríhyrningi Pascals í sögulegu samhengi og tengir þríhyrninginn bæði við tvíliðareglu algebrunnar og líkindareikning þar sem hún veltir fyrir sér líkindum á fjölda stúlkna og drengja í systkinahóp.

Summer Math Summit er ókeypis rafræn ráðstefna fyrir stærðfræðikennara sem fer fram dagana 25.–28. júní. Á ráðstefnunni eru yfir 50 erindi þar sem kennarar og sérfræðingar deila hagnýtum hugmyndum, kennsluaðferðum og innblæstri fyrir stærðfræðikennslu á öllum skólastigum. Kynntu þér dagskrána og fáðu nýjar hugmyndir til að efla stærðfræðinám og kennslu.

Talar PISA sínu máli?

Jóhann Örn Sigurjónsson skrifar áhugaverða grein um túlkun og notkun niðurstaðna úr PISA könnuninni. Hann dregur fram sjónarmið sérfræðinga á sviði námsmats og bendir á að PISA-gögn séu oft mistúlkuð, auk þess sem hann fjallar um þær takmarkanir sem felast í þeim. Greinin býður upp á áhugaverða umhugsun um hvernig nýta megi niðurstöður slíkra kannana á uppbyggilegan hátt í stað þess að nota þær sem bitbein í umræðu um menntamál.