Margrét Sigríður Björnsdóttir.
Í fyrstu bekkjum grunnskólans er mikil áhersla lögð á að börn verði læs og nær sú umræða einnig til leikskólans. Töluvert er unnið með bernskulæsi og bókstafi í leikskólum landsins en vinna við stærðfræði er oft ekki eins markviss enda lítið komið inn á hana í aðalnámskrá leikskóla.
Ég hafði heyrt af skimunarefni í stærðfræði ætlað leikskólastiginu og lék forvitni á að vita hvað væri þar á ferðinni. Til að kynna mér það betur hafði ég samband við Dóróþeu Reimarsdóttur sem var fús til að svara spurningum mínum en hún er ein þeirra þriggja sem þýddu og staðfærðu greiningarefnið MIO úr norsku. Hinar tvær eru Þóra Rósa Geirsdóttir og Jóhanna Skaftadóttir.
Á vefsíðu um efnið segir: „MIO er skimunarefni í stærðfræði fyrir leikskóla. Það varð til í Háskólanum í Stavanger eins og TRAS skimunarefnið sem margir leikskólar á Íslandi nota. Hvert barn er skimað þrisvar á leikskólagöngunni. Skimunin fer fram við daglegar athafnir og starf í skólanum og taka allir starfsmenn viðkomandi deildar þátt í henni. Matið tekur til þriggja meginsviða stærðfræðinnar sem eru þrautalausnir, rúmfræði og talning og fjöldi.“
Hér á eftir koma svör Dóróþeu við spurningum mínum:

Hvernig kom það til að þið ákváðuð að þýða efnið og hvenær var það?
Fyrstu kynni okkar af MIO (Matematikken – Individet – Omgivelsene) voru á ráðstefnu um stærðfræðiörðugleika, Nordic Research Conference on Special Needs Education in Mathematics, sem haldin var í Osló haustið 2009. Íslenska þýðingin er Stærðfræðin-Einstaklingurinn-Aðstæðurnar, sem vísar til þess að í stærðfræðináminu þarf að huga að stærðfræðinni sjálfri, ólíkri stöðu barna og örvandi námsaðstæðum. Þá þegar vakti efnið mikinn áhuga okkar og löngun til að færa það yfir á íslensku og gera aðgengilegt íslenskum leikskólakennurum, enda trúum við á mikilvægi þess að grípa sem fyrst inn í víki barn frá eðlilegu ferli. Við kynntum efnið fyrir ráðandi mönnum í matsfræðum í þeirri von að áhugi reyndist fyrir að taka við boltanum og gefa efnið út en af því varð ekki. Því var það árið 2016 að við ákváðum að taka málin í okkar hendur og sömdum við hlutaðeigandi aðila í Noregi um réttinn til að þýða efnið og gefa út á Íslandi. Útgáfan varð að veruleika í lok árs 2017. Við fengum leikskólann Pálmholt á Akureyri til liðs við okkur með að prófa efnið áður en til útgáfu kom og samhliða var unnið þar markvisst þróunarverkefni með styrk frá Sprotasjóði. Út frá reynslu þeirra þyngdum við örfá matsatriði lítilsháttar, því mat leikskólakennaranna var að þau væru ekki nægilega aldurssvarandi.
Hvernig er efnið byggt upp?
Prentaða efnið samanstendur af handbók og skráningarblöðum. Okkar útgáfu fylgja einnig tveir rafrænir fyrirlestrar um þá grunnþætti sem matið byggir á. Þeir eru líka kennsla í því hvernig nota skal efnið, því ekki þarf sérstakt réttindanámskeið til að nota það. Fyrirlestrarnir nýtast einnig til endurmenntunar og til að fræða nýtt starfsfólk um stærðfræðinám í leikskóla.
Fræðimennirnir norsku sem sömdu efnið skipta stærðfræðinni í þrjá grunnflokka sem eru þrautalausnir, rúmfræði og talning og fjöldi. Undir hverjum þessara þriggja flokka eru síðan tveir undirflokkar og í hverjum þeirra eru tvö matsatriði fyrir hverja skimun. Samtals 12 atriði í hverri skimun. Hvert barn er skimað þrisvar á leikskólagöngunni, þ.e. í þeim mánuði sem þau verða 2ja og hálfs árs, 3ja og hálfs árs og 4ra og hálfs árs. Skimunin fer fram í daglegu starfi leikskólans og taka allir starfsmenn þátt í henni þó svo að deildarstjóri beri endanlega ábyrgð á að rétt sé metið.

Í handbókinni eru öll matsatriðin með leiðbeiningum um hvenær barn telst hafa náð fullum tökum á viðkomandi atriði, hvenær barnið á svolítið í land með það og hvenær það hefur engin tök á viðkomandi efnisþætti. Einnig eru krufin þrjú dæmi um ólíka frammistöðu og bent á möguleika á að mæta mismunandi stöðu barna í hinu daglega starfi leikskólans.
Hverjir finnast ykkur vera styrkleikar efnisins?
Styrkleikar efnisins eru tvímælalaust þeir að hægt er að meta stöðu leikskólabarna í stærðfræði á sama hátt og flestir leikskólar meta málþroska og félagsfærni með TRAS. MIO er byggt upp á nákvæmlega sama hátt og TRAS og sú viðbót sem þarf til að fylla í heildarmyndina af námslegri stöðu leikskólabarnsins. Við teljum það kost að allir þeir sem með börnunum starfa komi að matinu því það verði til þess að allt starfsfólk verði meðvitaðra um undirstöðuþætti stærðfræðináms og hvernig grípa má tækifæri sem bjóðast í daglegu starfi leikskólans til að beina sjónum að stærðfræðinni.
Með þær upplýsingar að vopni sem niðurstöður skimunar veita er hægt að grípa inn í og tryggja markvisst inngrip víki barn frá eðlilegu þroskaferli í stærðfræðiskilningi. Því fyrr sem það er gert þeim mun líklegra er að nægilega góð undirstaða sé tryggð áður en formlegt stærðfræðinám hefst í grunnskóla.

Skráningarblaðið er mjög einfalt en gefur góða mynd af stöðu hvers barns og hentar vel að nota í viðtölum við foreldra. Við mælum með að skráningarblaðið fylgi barninu upp í grunnskóla.
Hver er reynslan af því að skima með MIO?
Um það bil 50 leikskólar hafa tekið MIO inn í starfið. Ekki hefur verið gerð formleg könnun á reynslunni af notkun MIO. Hins vegar höfum við spurnir af því að þar sem vel hefur tekist til að innleiða þetta í starf leikskólanna er það að gefast vel. Innleiðingarferlið getur reynst nokkuð snúið, ekki síst vegna þeirra miklu starfsmannaveltu sem víða er. Best er að hugsa þetta sem endurmenntun fyrir starfsfólkið og ætla hálfan vetur í innleiðinguna. Svo hafa einstaka sérkennarar í leikskólum nýtt efnið með öðrum hætti en við leggjum upp með og ekkert því til fyrirstöðu þar sem ekki er um staðlað verkfæri að ræða.
Af hverju ætti að skima fyrir stærðfræði í leikskóla?
Rannsóknir sýna að bestur árangur næst með börn sem víkja frá meðaltalinu sé gripið inn í sem allra fyrst. Þannig má mögulega koma í veg fyrir að brotalöm verði í nauðsynlegum undirstöðuþáttum fyrir frekara stærðfræðinám. Að skima með þeim hætti, sem gert er ráð fyrir í MIO, eykur líkur á að augu starfsfólks leikskólanna opnist enn frekar fyrir því hvernig stærðfræðin fléttast inn í leikskólastarfið. Svo má ekki gleyma mikilvægi þess að geta veitt foreldrum upplýsingar og viðmið byggð á faglegum grunni.
Hvernig er hægt að nálgast efnið?
Í tengslum við útgáfu efnisins stofnuðum við fyrirtækið Gloppu sf. sem gefur efnið út. Hægt er að panta 30-40 mínútna endurgjaldslausa kynningu á MIO fyrir stjórnendur leikskóla á netfanginu mio.skimun@gmail.com eða gloppa@gloppa.is og á gloppa.is er hægt að panta efnið. Startpakkinn inniheldur eina handbók, 25 skráningarblöð, slóðir að margnota fyrirlestrum og leiðbeiningar um innleiðingu efnisins.
Námskeið er ekki forsenda fyrir notkun efnisins en rafrænu fyrirlestrarnir koma í þess stað og eru ætlaðir til að nota við innleiðingarferlið í leikskólann sem heild en ekki bara einstaka starfsmenn. Fyrirlestrarnir nýtast síðan nýjum starfsmönnum til að kynna sér út á hvað skimunin gengur.

Nánar um þær sem þýddu og staðfærðu greiningarefnið MIO:
Þóra Rósa Geirsdóttir er með M.Ed. í sérkennslufræðum með áherslu á stærðfræðinám ungra barna. Hún hefur starfað sem grunnskólakennari, skólastjóri, kennsluráðgjafi í leik- og grunnskóla og unnið að þróunarstarfi m.a. í störfum sínum hjá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri.
Dóróþea Reimarsdóttir er með M.Ed. í sérkennslufræðum með áherslu á þróun talna- og aðgerðaskilnings hjá börnum. Hún er höfundur matsefnisins Greinandi próf í talna- og aðgerðaskilningi (miðstig) og hefur kynnt á námskeiðum ástralskt efni til að meta talna- og aðgerðaskilning barna við upphaf grunnskóla. Hún hefur starfað sem grunnskólakennari og kennsluráðgjafi í leik- og grunnskóla sem og stýrt þróunarverkefnum í stærðfræði.
Jóhanna Skaftadóttir er með B.Ed. í kennarafræðum með áherslu á smíðar og viðbótardiplómu í því fagi. Hún var lengst af smíða- og stærðfræðikennari í grunnskóla.
Að lokum:
Við vitum að lengi býr að fyrstu gerð. Strax í leikskóla er kjörið tækifæri til að leggja grunninn og vinna með stærðfræði á skapandi hátt. Þegar við gerum okkur grein fyrir stærðfræðinni í umhverfi barna þá er auðveldara fyrir okkur að draga hana fram og vekja um leið áhuga þeirra á stærðfræðilegum viðfangsefnum. MIO efnið getur hentað vel fyrir leikskóla sem vilja bjóða faglærðu og ófaglærðu starfsfólki sínu upp á sameiginlega starfsþróun. Ég vil þakka Dóróþeu fyrir greinargóð svör og hvet lesendur til að kynna sér MIO, t.d. á Gloppa.is.
Margrét Sigríður Björnsdóttir, aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands