Árleg ráðstefna um Hugsandi skólastofu verður haldin í New Haven, Connecticut í lok júní.
Þar verða í boði fyrirlestrar, vinnustofur og tækifæri til að ræða við áhugasama kennara og fræðimenn um leiðir við sköpun og þróun leiða við Hugsandi skólastofu.
Athugið að stutt er í að umsóknarfrestur renni út en greiða þarf þátttökugjald fyrir 17. apríl 2026.
NORSMA 12 er norræn ráðstefna sem haldin verður í lok október í Osló. Þetta er norræn ráðstefna um stærðfræði fyrir alla. Á ráðstefnunni verður fjallað um spurningar sem snúa að stærðfræði og sérkennslu á Norðurlöndunum. Þemað í ár er DEIA sem stendur fyrir fjölbreytni (diversity), jafnræði (equity), inngilding (inclusion) og aðgengi (access). Kynntar verða rannsóknir og kennarar segja frá reynslu sinni.
Á ráðstefnunni er því tækifæri fyrir íslenska kennara að kynna hugmyndir sínar, deila reynslu sinni og taka þátt í umræðum.
Nánari upplýsingar má fá hjá fulltrúum Íslands í ráðstefnunefndinni en það eru þær Edda Óskarsdóttir (eddao@hi.is) og Ósk Dagsdóttir (oskdags@hi.is).

Á Opnu Menntafléttunni þetta skólaárið eru fjölbreytt námskeið í boði fyrir öll skólastig:

Leikskóli:
🌱 Magnskilningur leikskólabarna
🌱 Stærðfræðin í leik barna
🌱 Stærðfræðin í umhverfi leikskólabarna

Grunnskóli yngsta stig:
🌿 Stærðfræðinám og upplýsingatækni
🌿 Talna- og aðgerðaskilningur
🌿 Tengsl og breytingar í stærðfræði
🌿 Tungumál stærðfræðinnar

Grunnskóli miðstig:
🪴 Stærðfræði og forritun
🪴 Stærðfræðinám og upplýsingatækni
🪴 Tengsl og breytingar í stærðfræði
🪴 Tungumál stærðfræðinnar

Grunnskóli unglingastig:
🌲 Greindu betur – samþætting stærðfræði, tölfræði og samfélagsgreina
🌲 Stærðfræði og forritun
🌲 Stærðfræðinám og upplýsingatækni
🌲 Tengsl og breytingar í stærðfræði
🌲 Tungumál stærðfræðinnar

Framhaldsskóli:
🌳 Greindu betur – samþætting stærðfræði, tölfræði og samfélagsgreina
🌳 Stærðfræði og forritun
🌳 Tungumál stærðfræðinnar

Foreldrar prófa leiðir Hugsandi skólastofu. Margir íslenskir kennarar eru að prófa sig áfram við að skapa Hugsandi skólastofu í stærðfræði. Einn af þeim er Jóhann kennari í Grundaskóla. Hann skrifar nú grein í Flatarmál þar sem hann segir frá leiðum sínum. Mjög áhugavert er að hann bauð foreldrum að koma og prófa að takast á við stærðfræði í Hugsandi skólastofu.

Í Söguhorni Flatarmála birtist nú ný og áhugaverð grein eftir Kristínu Bjarnadóttur. Þar segir Kristín frá þríhyrningi Pascals í sögulegu samhengi og tengir þríhyrninginn bæði við tvíliðareglu algebrunnar og líkindareikning þar sem hún veltir fyrir sér líkindum á fjölda stúlkna og drengja í systkinahóp.

Fimm ára kennaranám með áherslu á stærðfræði: Reynsla 5. árs nema

Í Flatarmálum var að birtast grein þar sem Bergur Ari Sveinsson segir frá reynslu sinni af kennaranámi sínu. Bergur Ari er á 5. ári í kennaranámi og hefur valið að leggja áherslu á stærðfræðimenntun. Hann greinir frá viðhorfum sínum til vettvangsnámsins og hvað hann telur skipta máli fyrir kennaranema. Eitt af umræðuefnum hans er fjarnám og staðnám og þær hindranir sem hann sér koma upp í fjarnámi. Mikilvægt innlegg í umræðuna um stærðfræðikennaranám.

Grunnskólakennarar um allan heim líta oft svo á að það sé vísbending um erfiðleika í stærðfræði þegar nemendur telja á fingrum sér. Niðurstöður rannsóknahóps sem Dr. Catherine Thevenot, prófessor í sálfræði við Háskólann í Lausanne í Sviss, leiðir benda þó einmitt til hins gagnstæða. Börn á aldrinum 4½ til 6½  sem telja á fingrum sér reynast sýna betri hugræna færni og meiri reikningsgetu en börn sem gera það ekki. Ennfremur sýna niðurstöður rannsóknanna að börn á aldrinum 7½ ára sem leysa reikningsdæmi á skilvirkan hátt án þess að nota fingurna eiga það sameiginlegt að hafa áður talið á fingrum sér og nýta þá í huganum þær lausnarleiðir sem þau þróuðu með sér meðan á notkun fingra stóð. Góðu fréttirnar eru síðan þær að það er vel hægt að kenna þeim börnum, sem ekki hafa uppgötvað þessa aðferð sjálf, að reikna á fingrum sér og það leiðir til verulegra framfara í samlagningarfærni þeirra.

Hér eru tilvísanir í nokkrar nýlegar fræðigreinar frá rannsóknahópnum:

👍 Do Children need counting principle knowledge to count on their fingers?

👍 Finger counting training enhances addition performance in kindergarteners.

👍 Learning basic arithmetic: A comparison between rote and procedural learning based on an artificial sequence.

👍 French preschool and primary teachers´ attitude towards finger counting.

Einnig er vert að benda á greinina Why Kids Should Use Their Fingers in Math Class eftir Jo Boaler og Lang Chen, við Stanford Háskóla, og myndbandið Our Brains Think about Math Visually af vefnum Youcubed.