Laufey Einarsdóttir.
Hvernig við byggjum upp námsmenningu í upphafi skólaárs
Námsmenning í stærðfræðistofunni
Námsmenning skiptir sköpum í skólastofunni. Hún hefur áhrif á hvernig nemendur upplifa nám, hvernig þeir treysta eigin getu og hvort þeir þori að takast á við nýjar áskoranir. Þegar námsmenning einkennist af trausti, virðingu og trú á að allir geti lært, skapast öruggt rými þar sem nemendur geta tjáð sig án ótta við að gera mistök. Mistök verða þá ekki aðeins eðlileg heldur einnig mikilvægur hluti af lærdómsferlinu.
Í Aðalnámskrá grunnskóla er lögð áhersla á jákvæðan skólabrag og góðan vinnuanda í bekkjum og námshópum. Þar kemur meðal annars fram að jákvæður skólabragur geti stuðlað að vellíðan, virðingu og ábyrgð nemenda og dregið úr neikvæðum samskiptum. Slíkur skólabragur verður þó ekki til af sjálfu sér heldur þróast með markvissri mótun námsmenningar, sameiginlegum gildum og samstarfi þeirra sem að skólastarfinu koma.
Í stærðfræðinámi getur námsmenning haft sérstaklega mikil áhrif. Margir nemendur og jafnvel fullorðnir, hafa þau viðhorf að sumir séu fæddir með sérstakan „stærðfræðiheila“ en aðrir ekki. Slík viðhorf geta dregið úr trú nemenda á eigin getu, orðið til þess að þeir forðist krefjandi verkefni eða gefist upp þegar lausnin er ekki augljós.
Ein af lykilforsendum jákvæðrar námsmenningar er hugarfarið, það hvernig við hugsum um nám og trú okkar á eigin getu til að læra.
Hugmyndir um vaxtarhugarfar byggja á þeirri sýn að hæfni sé ekki föst stærð heldur geti hún þróast með reynslu, viðleitni, stuðningi og markvissri vinnu.
Jo Boaler, prófessor í stærðfræðimenntun, hefur meðal annars lagt áherslu á að djúpur skilningur, skapandi hugsun, rannsóknarvinna, samtöl og fjölbreyttar lausnaleiðir skipti meira máli en hraði og endurtekning.
Hugarfar vaxtar eykur auk þess seiglu, ábyrgð og trú nemenda á eigin möguleikum, sérstaklega þegar þeir læra að líta á mistök og áskoranir sem hluta af sjálfu námsferlinu.
Í myndbandinu dregur Jo Boaler ásamt nemendum sínum saman nokkur mikilvæg skilaboð um nám, hugarfar vaxtar og stærðfræði.
Þessar hugmyndir hafa verið mikilvægt leiðarljós í þróun stærðfræðikennslu í Sæmundarskóla.

Boðorðin okkar
Í Sæmundarskóla hefur átt sér stað markviss vinna við að styrkja námsmenningu í stærðfræðistofunni undanfarinn áratug. Stærðfræðiteymið á unglingastigi mótaði sameiginleg gildi sem lýsa þeirri menningu sem við viljum viðhafa í stærðfræðinámi. Við köllum þessi gildi Boðorðin okkar í stærðfræði og byggja þau á hugmyndum Jo Boaler um hugarfar vaxtar í stærðfræði.


Fyrir nokkrum árum tóku allir kennarar skólans sem koma að stærðfræðikennslu, frá 1. bekk til 10. bekk, þátt í þróunarstarfi á vegum Opnu Menntafléttunnar. Námskeiðið sem við sóttum nefnist Tungumál stærðfræðinnar og er í boði fyrir öll stig. Í greininni Tölum saman um stærðfræði – karamelluverkefnið má lesa nánar um þróunarstarfið og sjá dæmi um verkefni sem unnið var með í tengslum við það. Meðan á námskeiðinu stóð hittumst við reglulega, ræddum kennsluhætti, ígrunduðum tungumál stærðfræðinnar og mótuðum skýrari sameiginlega sýn á námsmenningu, væntingar og orðræðu í stærðfræðinámi. Þróunarstarfið festi samstarf kennara á milli árganga í sessi og eru boðorðin okkar nú sýnileg og nýtt sem sameiginlegur grunnur að námsmenningu í stærðfræðinámi á öllum stigum skólans.
Boðorðin verða að venjum
Til þess að boðorðin verði lifandi hluti af námsmenningunni þurfa þau að vera meira en bara fallegar setningar á vegg. Þau þurfa að endurspeglast í verkefnavali, samskiptum, kennsluháttum og þeim væntingum sem við höfum til nemenda.
Þau hafa til dæmis áhrif á spurningarnar sem við spyrjum:
- Hvernig hugsaðir þú?
- Geturðu sýnt þetta á annan hátt?
- Hvaða leiðir prófaðir þú?
- Hvað lærðir þú af mistökunum?
- Geta verið fleiri en ein lausn?
- Hvernig tengist þetta einhverju sem þú þekkir eða hefur unnið með áður?
Boðorðin hafa einnig áhrif á verkefnaval kennara, t.d. verkefni sem hafa ekki alltaf eina augljósa lausnaleið, kalla á samtal og rökstuðning og gefa nemendum færi á að teikna, nota hjálpargögn, prófa einfaldari tilvik, leita að mynstrum og byggja á hugmyndum annarra. Þannig fá nemendur tækifæri til að kynnast boðorðunum í gegnum eigin vinnu og upplifa í verki þá námsmenningu sem þau eiga að endurspegla.
Heilahristingur – fyrsta lota skólaársins
Í upphafi hvers skólaárs leggjum við sérstaka áherslu á námsmenninguna í stærðfræðistofunni með markvissri vinnu sem byggir á boðorðunum okkar. Fyrstu lotuna á unglingastigi köllum við Heilahristing. Hún er hugsuð sem nokkurra daga innleiðing í þá menningu sem við viljum að einkenni stærðfræðinámið allt skólaárið. Námsmat lotunnar byggir á samvinnu og virkri þátttöku nemenda. Nemendur eiga meðal annars að sýna þrautseigju, hlusta á hugmyndir annarra, sýna virðingu, vera hvetjandi og gæta þess að allir í hópnum fái að taka þátt. Þessi markmið eru sýnileg nemendum frá upphafi lotunnar.
Á hverjum degi er unnið með eitt eða fleiri boðorð. Nemendur horfa á stutt myndbönd um nám, heilann og vaxtarhugarfar og ræða síðan hvernig hugmyndirnar tengjast þeirra eigin reynslu af stærðfræðinámi. Sérstök áhersla er lögð á að heilinn breytist og myndar nýjar tengingar með æfingu og reynslu. Myndlíking um að heilinn sé eins og vöðvi sem styrkist við þjálfun er notuð til að undirstrika mikilvægi þess að leggja sig fram, glíma við áskoranir og sýna þrautseigju.

Samhliða umræðum vinna nemendur verkefni þar sem boðorðin birtast í framkvæmd. Þannig tengjast skilaboðin um vaxtarhugarfar raunverulegri stærðfræðilegri vinnu.
Við höfum haft þá venju að skipulegga a.m.k. fimm kennslustundir fyrir lotuna, eina klukkustund á dag, en bæði lengd hennar og verkefnaval má auðveldlega aðlaga að aðstæðum og þörfum hvers nemendahóps. Verkefnin eru heldur ekki alltaf þau sömu frá ári til árs heldur skiptum við þeim reglulega út og prófum ný verkefni sem falla að markmiðum lotunnar og boðorðunum okkar. Hér á eftir eru dæmi um hvernig við vinnum með Heilahristing í 9. og 10. bekk, en sambærileg vinna fer fram í 7. og 8. bekk.
Dæmi úr 9. bekk: Hvernig sástu það?
Fyrsta dag Heilahristings í 9. bekk er sérstök áhersla lögð á boðorðin Allir, já allir geta lært stærðfræði og Hafðu trú á þér, það auðveldar þér verkið. Strax í upphafi viljum við draga úr þeirri hugmynd að það að vera góður í stærðfræði snúist um að vera fljótur að sjá eitt rétt svar. Þess í stað leggjum við áherslu á að allir geti lagt eitthvað til og að ólíkar leiðir til að sjá og hugsa hafi gildi.

Í kennslustundinni vinna nemendur með punktamyndir sem birtast aðeins í örskamma stund. Þeir eru síðan spurðir:
- Hvað sáuð þið marga punkta?
- Hvernig sáuð þið hvað punktarnir voru margir?
Markmiðið er ekki aðeins að komast að réttum fjölda heldur að beina athyglinni að því hvernig nemendur sáu myndina. Einn gæti séð tvo hópa með þremur punktum, annar þríhyrning eða ferning og sá þriðji talið punktana einn af öðrum. Við förum yfir ferlið í umræðum og teiknum upp á töflu.
Með verkefninu kemur strax í ljós að hægt er að sjá sömu mynd á ólíkan hátt. Framlag nemenda verður sýnilegt og mismunandi leiðir eru metnar að verðleikum. Spurningin færist frá „Hvert er svarið?“ yfir í „Hvernig hugsaðir þú?“
Punktaverkefnið tengist þannig einnig boðorðunum Spurningar og umræður dýpka skilninginn og Sjónræn hugsun og tengingar stækka heilann.

Í framhaldinu skoða nemendur fleiri punktamyndir og talnastæður og bera saman ólíkar leiðir til að sjá og reikna. Þannig er lagður grunnur að þeirri hugmynd að sjónræn framsetning sé ekki aðeins hjálpartæki fyrir suma nemendur heldur mikilvægur þáttur í stærðfræðilegri hugsun.
Punktaverkefnið, líkt og önnur verkefni sem við vinnum með í 9. bekk í Heilahristingi, er fengið úr smiðju Jo Boaler og samstarfsfólks hennar á YouCubed. Glærurnar sem við notum í lotunni innihalda m.a. námsmarkmið og boðorð hvers dags ásamt tenglum á myndbönd og þau verkefni sem unnið er með. Þær má nálgast hér: 9. bekkur Heilahristingur


Dæmi úr 10. bekk: Ættartré býflugna
Í 10. bekk vinnum við með fjölbreytt verkefni í Heilahristingi. Nokkur þeirra eru fengin úr verkefnasafni Peter Liljedahl og byggja á hugmyndum hans um hugsandi skólastofu, en önnur höfum við þróað sjálf. Glærurnar sem við notum í lotunni innihalda meðal annars námsmarkmið og boðorð sem unnið er með hverju sinni og eru þær sýndar nemendum ýmist í upphafi eða við lok kennslustundar. Á glærunum eru einnig leiðbeiningar fyrir kennara um framvindu verkefnanna, en verkefnin sjálf eru lögð munnlega fyrir nemendur. Glærurnar má nálgast hér: Heilahristingur 2026-2027 10. bekkur
Eitt þeirra verkefna sem við vinnum með í 10. bekk er Ættartré býflugna. Verkefnið byggir á þeirri sérstöðu í æxlun býflugna að kvenkyns býflugur eiga bæði móður og föður en drónar, karlkyns býflugur, aðeins móður. Nemendur fá það verkefni að búa til ættartré fyrir dróna og kanna hversu marga forvera hann á í hverri kynslóð. Þau byrja á fyrstu kynslóðunum og halda síðan áfram allt að tíu kynslóðir aftur í tímann.
Verkefnið er lagt munnlega fyrir nemendur, þeim er ekki sagt fyrir fram hvert það leiðir og engin ákveðin aðferð er gefin upp. Þau þurfa því sjálf að finna leið til að halda utan um upplýsingarnar, teikna upp ættartréð og leita að regluleika í fjölda forvera drónans.
Eftir því sem ættartréð stækkar getur þurft að endurskoða fyrstu hugmyndir, breyta framsetningu eða prófa aðra leið. Smám saman kemur í ljós talnamynstur þar sem hver tala er summa tveggja talna á undan eða Fibonacci-runan. Þaðan má leiða umræðuna áfram að Fibonacci-rununni og mynstrum hennar í náttúrunni.

Verkefnið gefur jafnframt fjölmörg tækifæri til samtals um vinnubrögðin sjálf. Við getum til dæmis spurt:
- Hvernig byrjuðuð þið að nálgast verkefnið?
- Hvað kom ykkur á óvart?
- Þurftuð þið einhvern tíma að breyta um aðferð? Af hverju?
- Hvernig gátu mistök eða misheppnaðar tilraunir hjálpað ykkur?
- Hvaða mynstur sjáið þið?
- Hvernig getið þið útskýrt mynstrið fyrir öðrum?
Þannig verður verkefnið ekki aðeins rannsókn á talnamynstri heldur einnig tækifæri til að vinna markvisst með boðorðin okkar. Hér leggjum við sérstaklega áherslu á boðorðin Mistök og áskoranir eru frábær fyrir heilann þinn og Í stærðfræði beitum við skapandi og rökrænni hugsun.

Nemendur þurfa hér að takast á við áskorun án þess að fá lausnarleiðina fyrir fram, prófa eigin hugmyndir og endurskoða þær eftir þörfum. Verkefnið gefur þannig tilefni til að ræða hvernig það að glíma við áskoranir, gera tilraunir, læra af mistökum og það að þurfa jafnvel að byrja aftur upp á nýtt, getur verið mikilvægur hluti af stærðfræðinámi. Jafnframt reynir á skapandi og rökræna hugsun þegar þau þurfa að skipuleggja upplýsingarnar, leita að mynstri og útskýra það sem þau uppgötva. Þannig verða boðorðin hluti af verkefnavinnunni sjálfri en ekki aðeins skilaboð sem við tölum um.
Sameiginleg sýn kennara
Viðhorf nemenda til eigin getu mótast að miklu leyti af því námsumhverfi sem þeir upplifa. Kennarar gegna því mikilvægu hlutverki í að skapa aðstæður þar sem vaxtarhugarfar getur þróast. Einstakur kennari getur haft mikil áhrif, en áhrifin verða dýpri og varanlegri þegar kennarar innan skóla sameinast um skýra sýn og sameiginleg gildi fyrir námsmenningu í stærðfræði.
Þegar nemendur heyra sambærileg skilaboð um mistök, viðleitni, skilning og þátttöku frá kennurum í mismunandi árgöngum skapast samfella í náminu. Trúin á að allir geti lært stærðfræði verður þá ekki aðeins slagorð eins kennara heldur sýn sem fylgir nemendum í gegnum skólagönguna.

Fagleg samtöl kennara gegna þar lykilhlutverki. Þau gefa okkur tækifæri til að velta fyrir okkur spurningum á borð við:
- Hvernig bregst ég við þegar nemandi gerir mistök?
- Hvaða verkefni kalla raunverulega á hugsun og umræðu?
- Hvernig sýni ég í verki að djúpur skilningur skipti meira máli en hraði?
- Er námsmatið í samræmi við þau gildi sem við segjumst standa fyrir?
Í slíkum samtölum spegla kennarar eigið starf í reynslu annarra, móta sameiginleg viðmið og læra hver af öðrum. Samvinna kennara verður því ekki aðeins leið til að samræma kennslu heldur mikilvægur þáttur í því að byggja upp og viðhalda sameiginlegri námsmenningu.
Lokaorð
Jákvæð og uppbyggileg námsmenning verður ekki til með einu verkefni, einu myndbandi eða veggspjaldi. Hún mótast smám saman í verkefnunum sem við kennarar veljum, spurningunum sem við spyrjum, viðbrögðunum við mistökum og þeim væntingum sem við höfum til nemenda og okkar sjálfra.
Boðorðin okkar í stærðfræði hafa gefið okkur í Sæmundarskóla sameiginleg gildi um þá menningu sem við viljum að einkenni stærðfræðinámið. Þau minna okkur á að allir geti lært stærðfræði, að mistök og áskoranir séu hluti af náminu og að skilningur, hugsun og samtal skipti meira máli en hraði og eitt rétt svar.
Þegar kennarar standa saman um slíka sýn og nemendur fá að upplifa hana í verkefnum, samskiptum og daglegu starfi verður trúin á að allir geti lært stærðfræði meira en falleg setning. Hún verður hluti af menningunni í skólanum.

Heimildir og stuðningsefni
Aðalnámskrá grunnskóla 2024. https://www.adalnamskra.is/grunnskoli
Liljedahl, P. (2020). Building Thinking Classrooms in Mathematics, Grades K-12: 14 Teaching Practices for Enhancing Learning. Corwin.
YouCubed. (e.d.). Mindset. https://www.youcubed.org/resource/growth-mindset/
YouCubed. (e.d.). Week of Inspirational Maths. https://www.youcubed.org/week-inspirational-math/

Laufey Einarsdóttir, stærðfræðikennari við Sæmundarskóla











