Dagana 25.-29. maí 2026 munu fara fram námskeið með Peter Liljedahl um aðferðir hugsandi skólastofu í stærðfræði og fleiri faggreinum.

Ekki láta fæla ykkur frá að þarna standi „framhaldsskóla og háskólastig“ því námskeiðin henta grunnskólakennurum ekkert síður en þeim og verkefni eru aðgengileg fyrir öll. 

Það eru laus 8 pláss á inngangs, 20 á framhalds og 30 á sérhæft námskeið annarra faggreina en stærðfræði. Því er skráningarfrestur framlengdur til 19. maí. 

Endilega sendið áfram til kennara móðurmáls, erlendra tungumála, samfélagsgreina, náttúrufræðigreina, hugvísindagreina… 

Nánari upplýsingar og hlekki til skráningar má finna á vefsíðunni https://samstem.hi.is/namskeid-um-hugsandi-skolastofur-2026/

 

Bestu kveðjur fyrir hönd stjórnar SamSTEM hópsins,

Anna Helga, Bjarnheiður, Freyja og Ingunn

 

 

 

Árleg ráðstefna um Hugsandi skólastofu verður haldin í New Haven, Connecticut í lok júní.
Þar verða í boði fyrirlestrar, vinnustofur og tækifæri til að ræða við áhugasama kennara og fræðimenn um leiðir við sköpun og þróun leiða við Hugsandi skólastofu.

 

NORSMA 12 er norræn ráðstefna sem haldin verður í lok október í Osló. Þetta er norræn ráðstefna um stærðfræði fyrir alla. Á ráðstefnunni verður fjallað um spurningar sem snúa að stærðfræði og sérkennslu á Norðurlöndunum. Þemað í ár er DEIA sem stendur fyrir fjölbreytni (diversity), jafnræði (equity), inngilding (inclusion) og aðgengi (access). Kynntar verða rannsóknir og kennarar segja frá reynslu sinni.

 

Á ráðstefnunni er því tækifæri fyrir íslenska kennara að kynna hugmyndir sínar, deila reynslu sinni og taka þátt í umræðum.
Nánari upplýsingar má fá hjá hér eða hjá fulltrúum Íslands í ráðstefnunefndinni: Eddu Óskarsdóttur (eddao@hi.is) og Ósk Dagsdóttur (oskdags@hi.is).

 

 

Á Opnu Menntafléttunni þetta skólaárið eru fjölbreytt námskeið í boði fyrir öll skólastig:

Leikskóli:
🌱 Magnskilningur leikskólabarna
🌱 Stærðfræðin í leik barna
🌱 Stærðfræðin í umhverfi leikskólabarna

Grunnskóli yngsta stig:
🌿 Stærðfræðinám og upplýsingatækni
🌿 Talna- og aðgerðaskilningur
🌿 Tengsl og breytingar í stærðfræði
🌿 Tungumál stærðfræðinnar

Grunnskóli miðstig:
🪴 Stærðfræði og forritun
🪴 Stærðfræðinám og upplýsingatækni
🪴 Tengsl og breytingar í stærðfræði
🪴 Tungumál stærðfræðinnar

Grunnskóli unglingastig:
🌲 Greindu betur – samþætting stærðfræði, tölfræði og samfélagsgreina
🌲 Stærðfræði og forritun
🌲 Stærðfræðinám og upplýsingatækni
🌲 Tengsl og breytingar í stærðfræði
🌲 Tungumál stærðfræðinnar

Framhaldsskóli:
🌳 Greindu betur – samþætting stærðfræði, tölfræði og samfélagsgreina
🌳 Stærðfræði og forritun
🌳 Tungumál stærðfræðinnar

Nú hefur Önnuhorn fjórði þáttur verið birtur í Flatarmálum. Þar eru dregin fram áhugaverð skrif hennar um þátttöku Íslands í TIMMS og norrænum keppnum. Nú þegar ákveðið hefur verið að Íslendingar taki aftur þátt í TIMMS er gagnlegt að lesa greinar Önnu sem birtust í Morgunblaðinu fyrir þrjátíu árum.

Foreldrar prófa leiðir
Hugsandi skólastofu

Margir íslenskir kennarar eru að prófa sig áfram við að skapa Hugsandi skólastofu í stærðfræði. Einn af þeim er Jóhann kennari í Grundaskóla. Hann skrifar nú grein í Flatarmál þar sem hann segir frá leiðum sínum. Mjög áhugavert er að hann bauð foreldrum að koma og prófa að takast á við stærðfræði í Hugsandi skólastofu.

Í Söguhorni Flatarmála birtist nú ný og áhugaverð grein eftir Kristínu Bjarnadóttur. Þar segir Kristín frá þríhyrningi Pascals í sögulegu samhengi og tengir þríhyrninginn bæði við tvíliðareglu algebrunnar og líkindareikning þar sem hún veltir fyrir sér líkindum á fjölda stúlkna og drengja í systkinahóp.

Fimm ára kennaranám með áherslu á stærðfræði: Reynsla 5. árs nema

Í Flatarmálum var að birtast grein þar sem Bergur Ari Sveinsson segir frá reynslu sinni af kennaranámi sínu. Bergur Ari er á 5. ári í kennaranámi og hefur valið að leggja áherslu á stærðfræðimenntun. Hann greinir frá viðhorfum sínum til vettvangsnámsins og hvað hann telur skipta máli fyrir kennaranema. Eitt af umræðuefnum hans er fjarnám og staðnám og þær hindranir sem hann sér koma upp í fjarnámi. Mikilvægt innlegg í umræðuna um stærðfræðikennaranám.

 

Nemar á faraldsfæti 

alþjóðlegar ferðir og keppnir
í stærðfræði 2026

Íslenskir framhaldsskólanemar hafa farið í fjölmargar alþjóðlegar ferðir og keppnir í stærðfræði á þessu ári. Slík þátttaka gefur efnilegum nemendum tækifæri til að takast á við krefjandi verkefni, kynnast jafningjum frá öðrum löndum og efla áhuga sinn á stærðfræði og raunvísindum.

Norrænar þjálfunarbúðir og NMC

Í lok mars tóku nokkrir íslenskir nemendur þátt í norrænum þjálfunarbúðum fyrir Norrænu stærðfræðikeppnina (NMC) í Lundi í Svíþjóð. Búðirnar voru haldnar dagana 23.-27. mars á vegum sænska félagsins Ung Vetenskapssport, sem heldur utan um þátttöku Svía í alþjóðlegum raunvísinda- og stærðfræðikeppnum.

Á meðan á búðunum stóð fengu þátttakendur þjálfun í að leysa stærðfræðiverkefni, þeir sóttu fyrirlestra og unnu með nemendum frá öðrum Norðurlöndum. Búðunum lauk síðan með þátttöku í sjálfri Norrænu stærðfræðikeppninni.

EGMO – Evrópuleikar stúlkna í stærðfræði

Ísland sendi í fyrsta sinn lið til þátttöku í Evrópuleikum stúlkna í stærðfræði, European Girls’ Mathematical Olympiad (EGMO), sem haldnir voru í Bordeaux í Frakklandi dagana 9.-15. apríl.

Í liði Íslands voru Mary Lilja Ingimundarson, MR, Nicole Jóna Jóhannsdóttir, MR, Snædís Hanna Jensdóttir, MA og Snædís Jökulsdóttir, MR. Liðsstjóri var Álfheiður Edda Sigurðardóttir og fararstjóri Nanna Kristjánsdóttir.

Þátttaka Íslands í EGMO markar mikilvægt skref í að efla þátttöku stúlkna í stærðfræðikeppnum og hvetja fleiri ungar konur til að leggja stund á stærðfræði og raunvísindi.

EMO – Evrópuleikar í stærðfræði

Ísland tók einnig þátt í nýstofnuðum Evrópuleikum í stærðfræði, European Mathematical Olympiad, (EMO), sem haldnir voru í Vilníus í Litháen dagana 23.-29. apríl.

Í liðinu voru Daði Logason, MR, Elvar Magnússon, VÍ, Magnús Thor Holloway, MR og Þorsteinn Snæland, MR. Liðsstjóri var Benedikt Jóhannesson og fararstjóri Marteinn Þór Harðarson.

Keppnin þótti afar erfið og voru mörg verkefnanna sérstaklega krefjandi. Þrátt fyrir það hlutu Magnús, Daði og Þorsteinn heiðursviðurkenningu fyrir lausnir sínar.

IMO – Alþjóðlegu Ólympíuleikarnir í stærðfræði

Sumarið 2026 verða Alþjóðlegu Ólympíuleikarnir í stærðfræði, International Mathematical Olympiad, (IMO) haldnir í Shanghai í Kína.

Í lið Íslands voru valdir Daði Logason, MR, Eysteinn Daði Hjaltason, VÍ, Jóakim Uni Arnaldarson, MR, Magnús Thor Holloway, MR, Matthías Pálmason Skowronski, MR og Patrek Ragnarsson, ETHs. Liðsstjóri verður Atli Fannar Franklín og fararstjóri Matthías Andri Hrafnkelsson.

Í undirbúningi fyrir keppnina stefnir íslenska liðið á að taka þátt í þjálfunarbúðum í Kína á vegum kínversku ólympíunefndarinnar. Slíkar búðir eru mikilvægur liður í undirbúningi keppenda fyrir stærstu stærðfræðikeppni heims.