Í vetur verður sérstakt Önnuhorn í Flatarmálum og er það tileinkað Önnu Kristjánsdóttur prófessor emerítus í stærðfræðimenntun sem lést 9. apríl síðastliðinn.
Fyrsti þáttur Önnuhorns birtist 14. október síðastliðinn á afmælisdegi Önnu og nú birtist annar þáttur Önnuhorns: Námskeið fyrir stærðfræðikennara, þar sem fjallað er um hve Anna lagði mikla áherslu á að haldin yrðu góð námskeið fyrir stærðfræðikennara.
Þátttaka í LEGO keppni í Texas.
Í tilefni þess að First Lego League keppnin fór fram 8. nóvember síðastliðinn, birtist nú grein um frábæra þátttöku liðs Vopnafjarðarskóla í alþjóðakeppninni í Texas.
Mælt með
Í hlaðvarpi á vegum Flatarmáls má heyra Bjarnheiði Kristinsdóttur segja frá bókinni Hugsandi skólastofa í stærðfræði sem hún þýddi á íslensku. Bjarnheiður byrjar á að segja frá tildrögum þess að hún þýddi bókina. Síðan segir hún frá uppbyggingu bókarinnar og lýsir vel grunnhugmyndum kennsluaðferðarinnar Hugsandi skólastofa í stærðfræði. Í frásögn sinni gefur Bjarnheiður góða innsýn í efni bókarinnar og kennsluaðferðina Hugsandi skólastofa í stærðfræði.
Haustið 2018 var ákveðið að byrja að gefa út jóladagatal Flatar. Þar eru 24 stærðfræðiþrautir fyrir breiðan aldurshóp sem kennarar geta nýtt í desembermánuði eftir því sem hentar. Þrautirnar má að sjálfsögðu nýta allan ársins hring.