Kennarar diffra, stærðfræðinámsbúðir fyrir kennara verða haldnar 6. – 9. ágúst 2024.

Markmiðið með kennarabúðunum er að veita kennurum tíma og rými til að læra nýja stærðfræði utan þess sem kennt er í framhaldsskólum (eða rifja hana upp), að búa til vettvang þar sem kennarar geta hist og rætt saman um starfs sitt og pælingar sínar og að kynna verkefnið Stelpur diffra betur fyrir kennurum.

Kennarabúðirnar eru hugsaðar fyrir framhaldsskólakennara en áhugasamir kennarar í unglingadeild geta sent póst á nanna@stelpurdiffra.is

Stelpur diffra er fyrir stelpur og stálp en kennarar af öllum kynjum eru velkomin.

Skráning fer fram á eftirfarandi hlekk en takmarkaður fjöldi plássa er í boði: Skráning í sumarbúðirnar Kennarar diffra 2024!

Flötur, samtök stærðfræðikennara, styrkja námsbúðirnar.

Stelpur diffra, stærðfræðinámsbúðir fyrir áhugasamar stelpur og stálp á aldrinum 16-18 ára, verður haldið 12. – 16. ágúst 2024.

Í vikulöngu prógrammi eru þemadagar þar sem farið verður yfir þær greinar sem falla undir Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna en einnig verður alls konar skemmtileg stærðfræði skoðuð sem ekki er fjallað um almennt í framhaldsskólum. Samhliða er unnið að sjálfstyrkingu í gegnum jafnréttisfræðslu og með því að skoða mikilvægi (og ósýnileika) stærðfræðikvenna í gegnum söguna. 

Sumarsmiðjur grunnskólakennara í Reykjavík 2024 verða haldnar dagana 12. – 13. ágúst næstkomandi. Skráningafrestur er til 8. ágúst og fer fram á torgid.reykjavik.is

Fjölmargar áhugaverðar smiðjur eru í boði, meðal annarra þessar:

🌼  PÝÞAGÓRASARTRÉ Í SKÖPUNARSMIÐJU:  Á smiðjunni kynnast þátttakendur hvernig hægt er að nota sköpunarver og tækni til að gera myndverk með tré eftir reglu Pýþagórasar. Þátttakendur búa til sitt eigið tré með laserskera og annarri tækni. Unnið er eftir ítalskri fyrirmynd frá FabLabaro og dæmi frá nemendavinnu í Ölduselsskóla kynnt og rædd.

🌼  HUGSANDI KENNSLURÝMI Í STÆRÐFRÆÐI: Markmið smiðjunnar er að kynna hvað felst í kennslunálguninni hugsandi kennslurými í stærðfræði (e. Thinking Classroom in Mathematics) en aðalmarkmið nálgunarinnar er að fá nemendur til að hugsa dýpra um stærðfræði. Þátttakendur fá tækifæri til að ígrunda hvernig þau geta nýtt sér hugmyndafræðina í eigin kennslu og prófa verkefni og leiðir sem hafa nýst vel í stærðfræðikennslu í Víkurskóla.

🌼  AÐ KENNA FJÁRMÁLALÆSI: Tilgangurinn með vinnustofunni er að kynna aðgengilegar kennsluaðferðir í fjármálalæsi og veita kennurum innblástur í kennsluna. Á vinnustofunni verður farið yfir kennsluáætlun fyrir einn vetur og hvaða færni nemendur geta fengið út úr þeim verkefnum sem til eru á heimasíðu Fjármálavits.

This image has an empty alt attribute; its file name is Asset-2rocket2-1024x141.png

Kynntu þér nýja og skemmtilega leið í starfsþróun. Opna Menntafléttan býður upp á fjölbreytt stærðfræðinámskeið fyrir kennara og starfsfólk á öllum skólastigum.

Endurmenntun Háskóla Íslands býður upp á tvö námskeið haustið 2024 sem tengjast stærðfræði.

Annað námskeiðið er Lengi býr að fyrstu gerð.  Mat á stöðu í talna- og aðgerðaskilningi við upphaf grunnskóla  og er það skipulagt með kennara á yngsta stigi grunnskólans í huga sem og sérkennara sem sinna mati og ráðgjöf.

Hitt námskeiðið er Stærðfræðiskimun í leikskóla – MIO og er ætlað fyrir öll sem starfa með leikskólabörnum.

Kennari námskeiðanna er Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir. Hún er fyrrverandi grunnskólakennari, verkefnastjóri sérkennslu og kennsluráðgjafi á leik- og grunnskólastigi. Hún er með M.Ed. í sérkennslufræðum með áherslu á stærðfræði með ungum börnum en hefur áralanga reynslu af að kenna stærðfræði á öllu grunnskólastiginu.

Utís Online er menntaviðburður á netinu fyrir kennara, stjórnendur og starfsmenn á öllum skólastigum. Ráðstefnan verður næst haldin 20.-21.september 2024 frá 13-16 á föstudegi og 10-15 á laugardegi.

Á ráðstefnunni verða um 20 fjölbreyttir fyrirlestrar en þar á meðal mun Peter Liljedahl fjalla um Að byggja hugsandi kennslustofur í stærðfræði (og víðar).

Skráning er þegar hafin.

 

Í nýjustu grein Flatarmála – Stærðfræðiáherslur í leikskólastarfi – fjalla leikskólakennarar í leikskólanum Vinagarði um áherslur sínar í stærðfræðikennslu og hvernig hægt sé að nýta náttúruna í útikennslustundir.

Á undanförnum árum hefur Auður Lilja Harðardóttir, kennari við Ísaksskóla, unnið með Stærðfræðikennslu byggða á skilningi barna (SKSB). Þar er megináhersla lögð á að opna leiðir fyrir börn til að efla talna- og aðgerðaskilning sinn. Kennsluhættirnir byggja á því að lagðar eru þrautir fyrir börn og þau þróa eigin leiðir við að leysa þær byggðar á fyrri þekkingu þeirra og reynslu.

Viðtal við Auði Lilju er maígrein Flatarmála og nefnist Glíman glæðir skilninginn. Viðtalið er sett fram með stuttum myndböndum þar sem Auður Lilja segir frá reynslu sinni af kennsluháttum SKSB. Auk þess eru í greininni nokkur myndbönd af íslenskum börnum að glíma við þrautir og útskýra hugsun sína.

Hvernig getur kennari nýtt sér gervigreind til að æfa sig í samræðum við nemendur með það að markmiði að beina athygli þeirra að atriðum sem skipta máli við lausnarleit í stað þess að gefa þeim svarið?

Þetta má kynna sér í afar áhugaverðri grein eftir Ingólf Gíslason, aðjunkt við Menntavísindasvið HÍ, sem nefnist Ný tækni og gamlar gátur.

Tölfræði má gera merkingarbæra strax í leikskóla. Í greininni Merkingarbær tölfræði fjallar Lena Landgren um hagnýtt verkefni sem leikskólabörn leystu með því að búa til súlurit. Röng svör sem kennarinn varpaði fram á meðvitaðan hátt sköpuðu námstækifæri.

Leikið með stærðfræði í Krikaskóla. Haldið var upp á alþjóðlegan dag stærðfræðinnar í Krikaskóla í Mosfellsbæ á pí deginum þann 14. mars 2024.  Gleði og ham­ingja ein­kenndu daginn eins og sjá má í þessari frásögn.

Til hvers þarf maður að læra stærðfræði þegar við getum notað reiknitölvu?

Í haust og næsta sumar verður Peter Liljedahl á ferð um Danmörku og Ísland og því gefst tækifæri til að taka þátt í námskeiðum á hans vegum.

Þau sem vilja fara í skólaheimsóknir í Danmörku tengt námskeiðunum í Álaborg geta haft samband við Kenneth Riis Pooulsen kerp@ucn.dk fyrir lok ágúst (til að tími gefist til skipulagningar)

Takið dagana 9. – 13. júní 2025 frá fyrir námskeið Peter Liljedahl hér á Íslandi!

Á stærðfræðibúðunum Kennarar diffra! sem má lesa um hér á síðunni undir liðnum Á DÖFINNI gefst tækifæri til að prófa hluta af aðferðum hugsandi skólastofu þótt Peter verði ekki á svæðinu.

CFU í Álaborg, Danmörku

• 29. október 2024 – Inngangsnámskeið fyrir stærðfræðikennara og fagstjóra og aðra áhugasama kennara (grunn- og framhaldsskóla) https://ucn.dk/cfu/kurser-og-temadage/building-thinking-classrooms
• 30. október 2024 – Framhaldsnámskeið með áherslu á að festa námsefnið í sessi (consolidation) og hvernig við ljúkum kennslustund https://ucn.dk/cfu/kurser-og-temadage/building-thinking-classrooms-skridtet-videre

• 31. október – Hvernig við notum aðferðir hugsandi skólastofu í öllum faggreinum á öllum skólastigum fyrir alla kennara https://ucn.dk/cfu/kurser-og-temadage/building-thinking-classrooms-i-alle-fag

CFU í Árósum, Danmörku

• 1. nóvember – Inngangsnámskeið fyrir stærðfræðikennara á öllum skólastigum (leik-, grunn- og framhaldsskóla) https://cfu.via.dk/kurser-og-konferencer/75194-building-thinking-classrooms
• 4. nóvember – Framhaldsnámskeið um að festa námsefnið í sessi (consolidation) og hvernig við ljúkum kennslustund í hugsandi skólastofu fyrir stærðfræðikennara á öllum skólastigum (leik-, grunn- og framhaldsskóla) https://cfu.via.dk/kurser-og-konferencer/75195-building-thinking-classrooms-skridtet-videre

• 4. nóvember – Námskeið leitt af dönskum kennurum um hvernig nota megi aðferðir hugsandi skólastofu við móðurmálskennslu (ath. þetta námskeið er á dönsku) með áherslu á leikskólastig og 1.-4. bekk grunnskóla https://cfu.via.dk/kurser-og-konferencer/77838-det-taenkende-danskfag

CFU í Hróarskeldu (Roskilde), Danmörku

• 5. nóvember 2024 – Inngangsnámskeið fyrir stærðfræðikennara með áherslu á miðstig og unglingastig https://cfu.kp.dk/events/building-thinking-classrooms/

• 6. nóvember 2024 – Framhaldsnámskeið um að festa námsefnið í sessi (consolidation) og hvernig við ljúkum kennslustund í hugsandi skólastofu með áherslu á miðstig og ungilngastig https://cfu.kp.dk/events/building-thinking-classrooms-skridtet-videre-om-opsamling-og-afslutning-af-lektionen/

Reykjavík, Íslandi

Dagana 9.-13. júní 2025 verða haldin inngangsnámskeið og framhaldsnámskeið – takið þessa daga frá!

Ætlar þú að gera stærðfræðiratleik í nærumhverfi þíns skóla þetta vorið eða strax næsta haust?

Íslensk útgáfa MathCityMap (https://mathcitymap.eu/en/) er komin í loftið. Stilla má bæði vefviðmót kennara og smáforrit nemenda þannig að þau séu á íslensku.

Lesa má um reynslu kennaranema af að nota MathCityMap í þessu lokaverkefni: Notkun stærðfræðistígs í kennslu stærðfræði í 10. bekk grunnskóla : greinargerð um stærðfræðiverkefni sem hönnuð voru fyrir útikennslu með aðstoð hugbúnaðarins MathCityMap

Hér eru leiðbeiningar um gerð stærðfræðistígs: https://mathcitymap.eu/en/tutorials-en/

Líklega þarf að senda fyrirspurn til sveitarfélags varðandi að mega nota forritið í skólastarfi (líkt og með önnur forrit) en finna má upplýsingar tengdar persónuvernd hér: https://mathcitymap.eu/en/data-protection/

Vitað er að skólar í Þýskalandi, Frakklandi, Tékklandi, Slóvakíu, Austurríki, Hollandi, Eistlandi, Finnlandi, Svíþjóð og fleiri Evrópulöndum nota þetta einmitt af því kröfur um persónuvernd eru uppfylltar.

DAGUR STÆRÐFRÆÐINNAR
– ÞEMAHEFTI

LOKSINS Á RAFRÆNU FORMI

Dagur stærðfræðinnar hefur flakkað nokkuð til á dagatalinu hér á landi. Upphaflega var ákveðið að halda Dag stærðfræðinnar þann 27. september í tilefni af alþjóðlegu ári stærðfræðinnar aldamótaárið 2000. Sú dagsetning þótti ekki henta af ýmsum ástæðum og því var ákveðið að færa hann þannig að hann væri fyrsta föstudag í febrúar. Seinna var hann færður aftur því hann rakst oft á við Dag leikskólans 1. febrúar en þá var Pí-dagurinn 14. mars fyrir valinu. Á þeim degi er einmitt alþjóðlegum degi stærðfræðinnar einnig fagnað.

Á hverju ári hefur verið valið þema og útbúin verkefni fyrir kennara til að nýta með nemendum sínum í tilefni dagsins. Fyrstu sex árin voru gefin út sérstök þemahefti sem nú má loksins finna á rafrænu formi en heftin eru gullkistur fullar af hugmyndum og verkefnum.

Miðja máls og læsis hefur tekið saman allt efni stöðumats ÍSAT nemenda á Padlet vegg. Þar er hægt að finna stöðumatshefti í stærðfræði fyrir ÍSAT nemendur á mörgum mismunandi tungumálum. Heftin er hægt er að leggja fyrir í kennslustundum og flestir nemendur geta unnið nokkuð sjálfstætt í þeim.

Stöðumatsheftunum er skipt í nokkra flokka:
– 1 – 3. bekkur
– talnaskilningur og reikniaðgerðir
– líkindi og tölfræði
– rúmfræði
– algebra